Vertu sæl og klessuð
Velkomin Grýta! Höfum við sést áður?
Starir rannsakandi á Grýtu
Já
Velkomin Grýta! Höfum við sést áður?
Starir rannsakandi á Grýtu
Starir sljóvgandi augum á Vímus og reynir að muna hvenær og hvar hún hefur séð hann áður
Takk fyrir Vímus.
Já, ég hef séð þig einhvers staðar áður.
Tja... nú man ég ekki. Er þvottahúsið Grýta enn til?
Hugsar sig um. Hvernig væri að koma með útibú hingað.
Glottir eins og fifl
Nei sko! Búið að líma þennan þráð. Leggst í fortíðarhyggjukast og skemmtir sér konunglega
Þetta er flott. Nú sjá nýliðadrusslurnar sem eru grenjandi yfir því að rassinn á þeim sé ekki sleiktur um leið og þær glenna sínar auðvirðulegu ásjónur framan í þrautreynda geðsjúklinga Gestpóhælisins, hvernig farið var að því að kyngreina þær spírur sem reyndu að villa á sér heimildir og finna út hvort um gamla endurkomusjúklinga í dulargerfi væri að ræða.
Ekki veitti af að endurvekja rannsóknarnefndina því mörg ókyngreind kvikindi í ýmsum myndum hafa verið að læðast hér inn síðustu misseri.
Akkúrat það sem ég vildi sagt hafa.
Kominn tími til að halda K.V.A.S.T rannsóknum áfram og granskoða hvers kyns nýliðar eru.
Að öðrum kosti senda þau á heilsugæslustöð Vímusar til nánari skoðunnar og jafnvel í lyfjameðferð.
Vímus, er ekki alltaf opið hjá þér á mánudögum?
Umhyggja þín fyrir viðskipavinunum er aðdáunarverð.
Pantar lyfjameðferð Eða á ég kannski frekar að fá mér raflost?
Ég sem hélt þú hefðir bara verið talinn góður aumingi.
Það er ég líka en hef ég ekki alltaf verið góður við þig?