Bæst hefur í hópinn nýr notandi. Ég kalla mig Gizur Sigurz. Ég læt ekki meira uppi um sinn en ég mun ver hér tíður gestur ef mér líkar vistin.
Þú virðist kunna málið. Þess vegna verður þú ekki beittur ofbeldi í þetta sinn.
Velkominn.
Sæll Gizur, en má ég benda þér á að við erum ekki notendur. Þær eru í fuglafriðlandinu.
Beðist er velvirðingar á brotum á fulgafriðunarlögum. Ég er nýr meðlimur í félagi Baggalútíu.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn með öllum nauðsynlegum fyrirvörum.
Veifar
Velkominn Gizur!
Komdu margblessaður og sæll Gizur.
Sæll og blessaður Gizur. Var annars ekki búið að afnema zeturnar? Klórar sér í höfðinu
Blezzaður zvakakalega gaman að zjá þig.
Velkominn Gizur. Finnst samt að þú ættir að heita Gizzur. Eða jafnvel Gißur.
Gissur skal það vera Z er ekki til lengur í íslenzku. Aðeins pizza þarf að skrifast með Z því annað væri full neyðarlegt enda ekki íslenzt orð og engin nennir að skrifa Flatbaka.
Velkominn Gissur
Eða þá bara Gisur fyrst þú villt hafa bara eitt en Nornin kannski leysti málið með staf (tákni) sem ég þó held að sé búið að leggja af eins og Z og tvö S komin í staðin.
Eða kannski Gißur Starir þegjandi út í loftið