Þér þöngulhausar og viti sneiddi söfnuður gengur villu vegar á illri öld. Vitið ekki hvað er boðlegt og hvað er boðlegt ey. Húmor ykkar er gersneiddur öllu viti. Skrattinn væri húmor ískari en þið og jafnvel hann snýr sér við er hann sér ykkar heimsku smetti og heyrir yðar heimsku tal. Hann myndi ekki bíta menn heldur myndi hann brenna þá í andlegum eldi sínum sem er ekki bókstaflegur. Amen.
Iðrist nú og takið á móti heilögu sakramenti yður til lífs og gæfu. Horfist í augu við sjálf ykkur þið sem eruð hálfir djöflar, hálfir menn og ræktið hið góða í ykkur. Takið við lífsins vatni og brauði líkt og frelsarinn boðaði ykkur til sálu hjálpar og frelsis. Frelsi undan því illa í ykkur er oss sem yður mikilsvert. Beygið ykkur fyrir þeim er þér þjónið því heimsendir er í að hefjast og hinir illu munu verða illir og hinir réttlátu verða réttlátir. Og heimsins skipting mun verða eftir því. Að eilífu amen. Ísland verður að verða ríki réttlátra iðrist því og gerið yfirbót nú á síðustu dögum.
Meistarinn hefur talað.
Lætur dónalega og djöfullega
Sturtar plástri í klósettið
Krotar á veggina
Kveikir í hári Meistarans
Meistarinn logar í andanum hvort eð er og því hefur yðar gjörningur engin áhrif á hár hans furðuvera.
Slekkur í hárinu og býr til móhíkana úr því
Nuddar svo eggjahvítum í það svo það verður grjóthart
Litar það skærbleikt með spreyi
Réttir upp tvo þumla og gengur á brott
Heyr, þú höfuð lausi söfnuður. Heimsendir er og þeir sem óréttlátir eru verið óréttlátir því ykkar er dauðinn, harmurinn og kveinið. Þið munuð verða af drýslum helvítis þar sem skrattinn er með gaddakylfu til að hegna ykkur fyrir það að vera ekki nógu ranglát við sjálf ykkur. En þið hinir réttlátu munu himnaríki erfa og hjá ykkur er gleðin, hamingjan og hláturinn. Amen
Meistarinn er ef til vill að gera grín,veit það ekki. En fjöldi mannvera sem trúir svona þvætting er slíkur að ljóst er að lífvera sú á enn nokkuð í land með að ná þeim vitsmunaþroska að skynja raunveruleikann.
Nei. En ég er ekki tilbúin til að leita hans þar sem hann getur ekki verið.
Sveiflar gaddakylfu
Auk þess er ekki víst að einn Raunveruleiki sé til. Þeir geta verið margir og jafnvel er engin til. Og í raun var þetta vitlaust orðað hjá mér því ég átti við leitina að uppruna undraverksins, ef sá uppruni er þá nokkuð til frekar en "raunveruleikinn". En hvorugs er að leita í nýtilkomnum siðfræðistefnum nýtilkominna átrúnaða. Lausnin, ef hún er til, er eðlisfræðileg.
Lok lok og læs og allt í hári...
Lok lok og læs og allt í hári...
Hverju og hvar? Himnaríki?Ætli maður fái sér herbergi með síma, sjónvarpi, tölvu, Tigruháraryksugu og minibar?
Já! Við læsum okkur inni og drekkum!
Svo ryksugum við allt kvöldið!
Best að gá hvort ég finni ekki gamla Bibblíu hér einhverstaðar, það hlýtur að vera í henni kort.
Þetta er jafnvel huggulegur staður eftir allt,altént virðist þjónustan ekki geta verið betri.
Eru ekki einhverjar takmarkanir?
Ég neita að taka þátt í skuggalegu athæfi sem inniheldur skó og kroppinbaka með hælsæri: