Kýrin öskrar kannske mö
karl þeir austan telja
flámælt þá og furðu djö-
fulsins skrítin belja
Kýrin mælir kannski "MU.
Mundu eftir mjólkinni.".
Smámælt baular kusa "SMU.
Spena vil ég hólk minni.".
Allar skepnur eiga bágt
ef hlutskipti sitt harma
Kannski baular kindin "Mu!"
og kýrnar stöðugt jarma.
geyja sumir garmar me
gas er á þeim skeppnum
góla aðrir glaðir ve
gas er með þeim heppnum
Starir þegjandi út í loftið
geyja sumir garmar me
gas er á þeim skeppnum
góla aðrir glaðir ve
gas er með þeim heppnum
Starir þegjandi út í loftið
Nú hefur skáldið þefað úr tappa sýnist mér.
Og hvurn dj. þýðir þetta "ve" ef ég mætti spyrja?
Eitt hrákvætt;
Sumir góla muu, muu, muu, muu, muu
aðrir baula mö,mö,mö,mö,mö,
einhver jarmar me,me,me,me,me,
og ég segi hver andskotinn er eiginlega að ske!
æjá þetta var nú ekki merkilegur kveðskapur og hef ekki einu sinni þá góðu afsökun að vera fullur - má ekki vera að því að þjóra þessa dagana. ve! var hugsað sem gleðiupphrópun, afbakað vei! En í vísunni áttu að dyljast laumusetningar:
geyja sumir garmar, megas er á þeim skeppnum
góla aðrir glaðir, vegas er með þeim heppnum
en þetta var nú bara tilraunastarsemi, slíkt lukkast eigi alltaf
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann