Þetta er lífsnauðsinlegt tæki Skabbi minn, svo er hægt að setja inn hljóðbækur og svoleiðis líka.
Hljóðbækur? Ja hvur fjandinn... aldrei hefur mér dottið það í hug ber hausnum í vegg Þá spara maður tíma, getur auðgað andann um leið og líkaminn er ræktaður.
Allveg brillíant uppfinning!
Það segirðu satt.
Íslenskur verkfræðingur gekkst undir aðgerð í morgun þar sem grædd var kartafla framarlega í kok hans. Á næstu vikum tekur síðan erfið geislameðferð sem drepa á um 75% af heilafrumum hans og lama allar sáðfumur nema tvær. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem Íslendingur lætur breyta sér í Dana.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Þetta er uppáhaldið mitt!
Uppáhaldið mitt er Síðasta kvöldmáltíðin, þegar Jesú var fullur og ætlaði bara samt heim á asnanum; „Rómverjar, Schmómverjar!“
Æh, hvaða þáttur var það?
Á þessum árstíma eru sannir Íslendingar vanir að blóta Þorra í góðra vina hópi. Afar mikilvægt er við slík hátíðarbrygði að töluð sé góð íslenska. Dæmi um tilhlýðilegt íslenskt þorrablót er til dæmis: Djöfulsins drullubölvaður ekkisens óþefur er af þessum skrambans hákarlsskratta og þessi hrútspungshelvíti eru nú meiri andskotans viðbjóðurinn. Einnig; drullast þú til að skenkja mér meiru af þessum bévitans brennivínsþvagkreistingi þínum helvítis lúsablesinn þinn. Nú menn sem á hinn bóginn dirfast að mæla fyrir munni sér setningar á borð við; ég vil engan fokking súrmat eða sjit hvað þetta er góð sviðasulta, eru ekkert annað en föðurlandssvikarar.