Hér er hægt að vitna í frasa og sketsa úr útvarpsþáttum sannleikans.
Almennar umræður, trivia og spekúleringar um þá eru auðvitað vinsælar líka.
Man einhver eftir þessum?
...um þennan óbilgjarna riddara næturinnar, sem gleymir engu
Góða nótt. Þetta er Baggalútur, veðrið er æðislegt, og ég er með óráði.
Gefur frá sér vellíðunarstunu
Var þetta ekki:
Góða nótt, þetta er hrökkbrauð, veðrið er æðislegt og ég er með óráði
?
Arg, jú.
Vandræðalegt.
Arg, jú.
Vandræðalegt.
Þú ert þó ekki með óráði?
Þessi er auðvitað algjört gull líka
Ekki slefa svona á teppið Baldur minn. Þetta er ull.
Aldrei hef ég vitað aðra eins gargandi snilld...
Vísindamenn Sjálfstæðisflokks hafa þróað nýtt og fullkomið bóluefni gegn óæskulegum stjórnmálaskoðunum. Bóluefnið vinnur á ákveðnu ensími sem brýtur niðurfrjálshyggjuvöxt í heiladingli en byggir á móti upp svokallað D-plús ensím sem eyðir sósíalisma úr blóði og taugaendum. Bóluefnið er unnið úr eldri borgurum af Seltjarnarnesi en þeir hafa mikið af náttúrulegu D-plús í kjarnsýrum.
Hollenskum vísindamanni hefur tekist að einrækta dverg. Hann vísar á bug gagnrýnisröddum um siðleysi og brot á alþjóðasáttmálum en bendir á að það myndi aldrei hvarfla að honum að einrækta alvöru manneskju.
Djöfull hló ég þegar ég heyrði þetta fyrst...
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Mér finnst allt með Baldri tæknimanni yndislega fyndið, sérstaklega húðflúrunin og margföldunartaflan.
Ég þekki vissan einstakling með alla þættina inni á ipodinum.
Þekkirðu mig þá?Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Heyrðu... þetta er kannske ástæða til að fjárfesta í svoleiðis tækni... hvenær hlustið þið á slík tæki (þ.e. ipod)?
Í ræktinni, á göngu, í bílnum ef útvarpið er leiðinlegt og ég er ekki með skemmtilega diska meðferðis, á kaffihúsi ef tónlistin þar er ekki að mínu skapi og ég er ein.
Mjög nytsamlegt tæki.
Í stærðfræðitíma, á göngu, á ferðalagi, á kaffihúsi, bara allstaðar! Geðheilsan væri fokin út í veður og vind ef ég hefði ekki spreðað síðustu krónunum í þetta...
Áhugavert... af þeim stöðum sem þið teljið upp, þá er það helst ræktin sem myndi henta mér... hlusta á náttúruna í gönguferðum, hlusta á geislaspilarann í ferðalögum, fer alldrei einn á kaffihús, er alldrei í stærðfræðitímum... en kannske maður spái í þessari græju samt...
Þú sérð ekki eftir því...
Reynir að leiða Skabba í freistni