Fýsi drós að drýgja hór
duga skaltu maður.
Þú skalt drengur þamba bjór.
Þá verður´ðu glaður.
fýsi drós að drýgja hór
duga skaltu maður
miðjufótinn fýsnastór
færðu ekki staður
fýsi drós að drýgja hór
duga skaltu maður
buxur,vesti, brók og skór
burt - og ekkert þvaður.
fýsi drós að drýgja hór
duga skaltu maður
Fýsi drós að drýgja hór
duga skaltu, maður
segð'enni upp og ekkert slór
sæll vertu, frelsaður!
Stekkur hæð sína