Það er líklega kominn tími á formlega kynningu hjá mér. Heidi heiti ég og hef fylgst með umræðum hér á Gestapó í langan tíma. Fyrir nokkru síðan datt mér í hug að skrá mig og hver veit nema mér takist bráðlega að hrista af mér feimnina svo ég geti tekið þátt í hinum stórskemmtilegu umræðum sem hér finnast.
xT
Velkomin mín kæra. Ég er viss um að þú hefur margt og merkilegt til málanna að leggja.
Skál!
Kona! Kooona! Kooooona!
Sparkar í neyðarbjöllu hins örvæntingarfulla njörðs.
Rauð ljós blikka og allt tryllist
Komdu sæl Heidi. Hvar náðirðu í svona fína mynd?
Velkomin, þú átt örugglega eftir að dusta af þér feimnina. Hún er hvort eð er bara til trafala.
Skál
Heil og sæl. Þú ert aldeilis ekki ein. Sjálfur hysjaði ég upp um mig buksurnar í morgun og gékk í hópinn.
Er við það að rifna úr stolti
Heil og sæl. Þú ert aldeilis ekki ein. Sjálfur hysjaði ég upp um mig buksurnar í morgun og gékk í hópinn.
Er við það að rifna úr stolti
Hvar fær maður buksur? Er það austurískt fyrirbæri?
Þú verður að redda mér eintaki.
Hvað er konan horfin?
Sleppir því að opna fyrir hliðið á nördaréttunum.
Ég var að vonast til að geta viðrað nördana.
Ég er nú bara fífl en svolítð ert þú lík henni
Grétu Gustafson sem bjó á blekinge götunni númer
36 út í stokkhólmi og var að vinna í verzlun pub
1920 og senna fór út í hollywood , Eru þið ættingjar?
Voru Gísli, Eiríkur og Helgi allir með puttana á lyklaborðinu við að skrifa þetta innlegg?
Ég þakka hlýjar móttökur.
Engar áhyggjur Hakuchi, ég fer aldrei langt frá Gestapó blikkar
Voru Gísli, Eiríkur og Helgi allir með puttana á lyklaborðinu við að skrifa þetta innlegg?
við erum ekki með neina lykkla að borðinu
Öldungis velkomin Heidi og vegni þjer bara vel!