Nú er ég orðin svo ringluð að ég veit ekki lengur hver er ég?
Þú mátt vera ég þangað til þú rankar við þér. Ljómar upp
Nú er ég orðin svo ringluð að ég veit ekki lengur hver er ég?
Þjer eruð Glúmur eins og nær allir gestirnir hjer. Vjer höfum þó verið svo heppnir að vera einn örfárra gesta (teljandi á fingrum annarrar handar) sem eigi eru Glúmur. Um daginn uppgötvuðum vjer þó að slíkt flokkast hugsanlega eigi undir heppni eins og vjer kölluðum það í síðustu málsgrein heldur fylgja því líka ókostir. Því miður erum vjer búnir að gleyma hverjir þeir ókostir voru og neyðumst vjer því hugsanlega til að lesa allt er hjer hefur farið fram síðustu 7-10 daga Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann. Í kjölfarið á því viljum vjer hugsanlega renna saman við Glúm og þar með aðra gesti hjer sje það hægt.
Upprifinn er ekki Glúmur og Glúmur er ekki Upprifinn enda báðir endar á mismunandki ættlegg.
Vjer erum nær vissir um að þjer eruð Glúmur. En ætli Glúmur viti betur en þeir sem eigi eru Glúmur (t.d. vjer) hverjir eru Glúmur eða ætli Glúmur viti eigi nákvæmlega hver hann sjálfur er og hvernig hann er samsettur ? Klórar sjer í höfðinu
PS Einn ókost við að vera eigi Glúmur vitum vjer núna um sem vjer vissum eigi um áðan. Það er hinsvegar eigi gleymdi ókosturinn sem vjer nefndum í síðasta innleggi Heldur áfram að finnast það óþægileg tilhugsun að þurfa e.t.v. að lesa allt er fram hefur farið hjer sl. 7-10 daga.
ég er hinsvegar þess alveg fullviss að ég er ekki Glúmur. Enda er Glúmur ekkert nema óvirkur Gestapófíkill og þar af leiðandi ömurlegur. Ég er hinsvegar bara ömurlegur í stafsetningu en að öðru leiti alveg frábær.