Hvað með hjólastólarallý?
Við gætum sent Ömmu Kúreka.
Ívar, er góðakstur á strætisvögnum ekki löggilt keppnisíþrótt? Óneytanlega væri gaman að sjá lið frá Strætó BS á næstu Ólympíuleikum.
Gengur ekki. Þeir eru alltaf að stoppa.
Ofdrykkja og keðjureykingar eru sport sem flestir ættu að kynna sér og leggja síðan skóna á hilluna þega aldur færist yfir.
Skál!
Það leiðir hugann að hinni göfugu íþrótt, óhemjureið, eða bronco riding.
Pabbi átti Bronco og mamma varð óhemju reið þegar ég stal honum.
Held ég hafi ekki ferðast í Bronco síðan vinur minn velti fullur á leiðinni heim af balli með okkur félagana innanborðs og við skriðum út í bensínbaði. Þetta var allt eins og lög gera ráð fyrir farþegarnir fleiri en sætin, enginn í belti og allir þokkalega drukknir, ökumaðurinn líka. Enginn slasaðist en það rann harkalega af sumum.

Enda voru þeir annálaðir fyrir óstöðugleika. Sérstaklega ef bílstjórinn var út fókus.
Ef það á að vera einhver íþrótt á Baggalút þá á það að vera rúbbí með frjálslegum reglum. Fáir kunna sportið og eru því flestir á jafnræðisgrundvelli. Svo er þetta tilvalið sport fyrir almennileg Gaulverjaslagsmál.
Hefur þú heyrt talað um reglu nokkra sem kennd er við stafina „ng“ og „nk“?
Boccia er afar vanmetin íþrótt.
Einstaklega vanmetin. Svo er curling náttúrulega afar sérstök íþrótt.
-