Þið vitið annars hvað er líkt með brjóstum og fjarstýrðum bílum...
bæði er ætlað börnum en svo eru það eiginlega pabbarnir sem leika sér mest með þetta.
Og varðandi titilinn "...og annað sem snýr að brjóstum kvenna" þýðir það þá að ég megi tala um sjálfan mig hérna?
Hversu hættulegt er að vera t.d. í hnébeygju og fara að hugsa um kynlíf á meðan? Er það hættulegra en að fara að hugsa um eitthvað mjög fyndið? Hvaða áhrif hefur það á langtíma árangur íþróttamannsins?
Ég veit nú bara hvernig ég hugsa og get ekki svarað fyrir aðra... en 30 mínútur á skíðavélinni líða ógnarhratt ef ég hugsa bara um kynlíf á meðan Roðnar óstjórnlega Svo herðir það líka á hjartslættinum og ég er fljótari að ná hröðum og góðum brennslupúls Ljómar upp
Það er aðeins erfiðara að vera að hugsa um gaura á meðan ég er að lyfta... þá þarf ég að einbeita mér að því að vera bein í baki og telja og allt það.
Lítur álkulega útHa!Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Talandi um stigavélar og þesslags.. það getur verið helvíti að vera með ágætlega stór brjóst, ef maður á að fara út að hlaupa eða hopppa eða eitthvað álíka!
Ef maður er ekki í nógu góðum og sterkum íþróttatopp, þá hreinlega meiðir þetta! Ég hef lent í því að ég gat ekki hlaupið án þess að halda við brjóstin, því ég fékk hreinlega verki í þau.
Annars finnst mér endalaust erfitt að finna brjóstahaldara sem passa vel. Þeir kannski virðast passa fínt í búðinni.. en um leið og maður er farinn að labba mikið eða hreyfa sig á einn eða annan hátt, þá eiga brjóstin það til að poppa upp úr.
Svo eiga höldin það til að renna fram af öxlunum á manni.. og ef maður þrengir höldin, þá togast bakstykkið langleiðina upp á háls!
Pirrar sig á brjóstahöldum
Þetta er bersýnilega flókið mál, og ljóst er að bráðnauðsynlegt var að stofna þennan þráð. Það er víst ekki endilega tekið út með sældinni að vera kvenmaður, svo mikið er víst. Ég sé ekki tilefni til annars en að halda þessum rannsóknum áfram af fullum krafti.
Er ekki til eitthvað sem heitir sportbrjóstahaldarar? Eru þeir ekki betri þegar hreyfing er annars vegar? Ef svo er, hvernig eru þeir betri?
Hefur kvenfólki á hreyfingu ekki dottið hug í að teipa hreinlega yfir brjóstahaldara með einangrunarteipi til að koma í veg fyrir frekara hopps og hangs meðan á hlaupum stendur.
Lítur á úrið.
Hmm....kannski ég ætti að drífa mig í ræktina.
Ég held ég fari bara í lífræna brjóstaminnkun!
Er ekki til eitthvað sem heitir sportbrjóstahaldarar? Eru þeir ekki betri þegar hreyfing er annars vegar? Ef svo er, hvernig eru þeir betri?
Hefur kvenfólki á hreyfingu ekki dottið hug í að teipa hreinlega yfir brjóstahaldara með einangrunarteipi til að koma í veg fyrir frekara hopps og hangs meðan á hlaupum stendur.
Lítur á úrið.
Hmm....kannski ég ætti að drífa mig í ræktina.
Það eru til svokallaðir íþróttatoppar sem styðja einstaklega vel við brjóstin. Þeir eru ekki með spöng eins og flestir brjóstahaldarar, því það er ekkert voðalega þægilegt að vera með spöng þegar maður er að klessa brjóstin upp að líkamanum svo að þau geti hreifst sem minnst.
Teip myndi sjálfsagt ekki festast vel (sérstaklega ekki ef maður er að hreyfa sig mikið og svitnaði) og færi auk þess ekki vel með brjóstahaldarana.. þeir yrðu fljótlega hnykróttir.
Farðu í HB-Búðina í Hafnarfirði Tigra mín... var einmitt að mæla með henni í félagsriti.
En verð að samþykkja að hlaup í ræktinni eru út úr myndinni. Stigvélar og skíðavélar eru það eina sem virkar fyrir mig því þar er "hossið" minna. Hreyfingin á þessum vélum er mýkri en á hlaupabrettinu og því er minna álag á brjóstin.
Annars hef ég aldrei fengið almennilegann íþróttatopp og veit því ekki hvernig þeir reynast.
Teip (og þá er ég að tala um sterkt tvíhliða límband) virkar mjög vel þegar maður er í hlýralausum kjól.
Bara að skella sér í hlýralausann haldara og líma hann við húðina og kjólinn (verklega framkvæmdin á þessu er ekki auðveld og helst þarf maður hjálp, en þetta er hægt).

Sagðiru hjálp. Elskan mín vertu ekki feimin við að hringja í mig ef ég get ekki orðið þér að liði. Ég tek ekki krónu fyrir það.
Ahh...það var mikið að ég fæ sjálfboðaliða í þetta... er búin að vera að borga sjúkraflutningamönnum offjár fyrir að mæta einu sinni á ári og aðstoða mig við að festa kjólinn Ljómar upp
Ég verð þá í bandi þann 11. júní.
Ekki málið. Ég tek 11. júní frá. Þarf ég að taka með mér einhver hjálpartæki?
Ég gæti raunar alveg þegið hjálp þá líka!
Planið er að vera í hlíralausum þann 11.
Æðislegt. Ef þið viljið get ég hjálpað ykkur báðum í einu.
Þetta er bersýnilega flókið mál, og ljóst er að bráðnauðsynlegt var að stofna þennan þráð. Það er víst ekki endilega tekið út með sældinni að vera kvenmaður, svo mikið er víst. Ég sé ekki tilefni til annars en að halda þessum rannsóknum áfram af fullum krafti.
Ég tek undir það. Þrjár síður á tæpum sólarhring sanna væntanlega hversu þarfar þessar rannsóknir eru.
Ég er ánægður með að það skuli hafa verið hægt að ræða brjóst á svo sívílíseraðan hátt í svo langan tíma. Stórkostlegt alveg.
Ekki málið. Ég tek 11. júní frá. Þarf ég að taka með mér einhver hjálpartæki?
Nei nei... ætli við Tigra vitum ekki hvað þarf að hafa meðferðis... þú mætir bara með góða skapið Ljómar upp