Eigum við ekki að stofna samtök hér á Gestapó og kaupa Símann?
Vonast til að þetta sé nóg til að starta líflegar umræður um Símann og einkavinavæðingu, pólitíska spillingu og annað slíkt... jafnvel um hugsanlegan gróða Gestapóa...
Jú ... við erum orðin svona mörg hérna að ég held að við gætum hæglega haft efni á honum ef við leggjum öll saman í púkk. Sjálfur ætti ég að geta séð af svona hálfri milljón. Þetta er auðvitað skotheld fjárfesting.
Við getum lagt alla þá peninga sem annars færu í nettengingu næstu 10 árin... með því að eiga símann þá hljótum við að fá ókeypis nettengingu í gegnum klíkuskap....
Það er algjör snilldarhugmynd! Þú kannt sko að hugsa hlutina. Þarna er strax komið óhemjumikið fé handa hverju og einu okkar. Það verður alltaf ljósara og ljósara að þetta félag okkar mun koma til með að rúlla upp útboðinu.
Ég vara þó við að leggja pening í fjárfestingarævintýri Agnesar Bragadóttur.
Ég hef lúmskan grun um að hún muni flýja til Ríó með 27 milljarðana.
Hvar er Jóakim? Getur hann ekki bara keypt þetta fyrir okkur?
Hann hefur verið fátæklingur síðan aurarnir hættu að vera löggiltur gjaldmiðill.
Það eina sem hann á eftir er illa farinn peningur með takmarkað söfnunargildi. Kannski fást einhverjir dollarar fyrir hann á E-bay.
Ég vil minna á að peningurinn er í höndum Hexiu núna...
Ég skil ekki af hverju við ættum að vera að kaupa það sem við eigum nú þegar. Fjármálaráðherra á að senda hverju okkar hlutabréf sem við síðan getum átt eða selt. Ég treysti ekki þessum slordónum til að fara skynsamlega með það sem fyrir Símann fæst.
P.S. Síminn minn er til sölu - Sony Ericsson T610
Ég vonast til að fá 40 - 60 milljarða fyrir hann. Væri einhver til í að hvísla þessu að Agnesi Bragadóttur?
Hvað ætli sje markaður fyrir marga síma þessa dagana ? Vjer erum nefnilega líka með síma til sölu og stóð til að nota ágóðann af sölunni til að fjármagna hernaðaraðgerðir.
Ég ætla kaupa Impregilo fyrir minn.
Ætla að kaupa súkkulaði. Alvöru gull saxofón,míkrafón og eðal PEARL trommusett.
Ég á sko tvo síma Hoppar um af kæti og þykist vera að tala í báða símana í einu
Ég á í símanum!