Mér er mikið kappsmál að fá að senda inn eins staf sinnlegg á borð við „á“, „æ“, og „ó“, án þess að vera kölluð ónefnum og án þess að setja inn bil.
Af hverju gerið þið aldrei neitt sem ég bið ykkur um? Hef ég gert ykkur eitthvað?? Ha?
Á
Vjer vorum að uppgötva kostulegt tilbrigði við þetta alræmda vandamál. Ef vjer sendum inn innlegg er inniheldur 'Á ' (þ.e. eyða aftast) heppnast það en eyðan er sjálfkrafa tekin burt. Það þýðir að ef vjer síðan förum inn í innleggið og veljum að eyða því mistekst það og vjer fáum kurteislega tilkynningu þess efnis að vjer sjeum api.
Já, það er sannarlega margt sem hrjáir mannkynið.
Ég pota þessu á listann.