Þrýstilínur þekja veðurkort.
það er stórviðri á stöku stað.
Veðurstofuvitringar kváðu von á stökuhríð og jafnvel frosti, datt mér því um hug um helgina:
Varla gleðja veður stríð
vinda herðist rosti
stofan kveður stökuhríð
stuðlar hér að frosti
skelfur af hrolli
Þrýstilínur þekja veðurkort.
það er stórviðri á stöku stað
þó er ekki veðurs versta sort
varla streymir niður blóð og tað
Þrýstilínur þekja veðurkort.
það er stórviðri á stöku stað.
Þenja öldur hafsins hafnarport
hendist þari upp á bæjarhlað
Varla gleðja veður stríð
vinda herðist rosti.
Helst oss vantar hafraklíð
og hveitibrauð með osti.
Þrýstilínur þekja veðurkort.
það er stórviðri á stöku stað.
Ágætlega er hér ort
eitthvað er samt að?
Hvað er það?
Starir þegjandi út í loftið
Þrýstilínur þekja veðurkort.
það er stórviðri á stöku stað.
Ágætlega er hér ort
eitthvað er samt að?
Hvað er það?
Nei nei, sei sei, Escape og Abort
Ofstuðlunarpúkinn fór af stað.
Ofstuðlanir æddu’af stað
eða hvað
Krull hér auga kom á það
hvað var að?
Brestur í óstöðvandi grát
Við lestur minnar vísu menn eflaust draga ýsur
og andlegt núna blasir við höfundinum hrun.
Í vísum þar sem vísvitandi vísað er í vísur
er víst að voðinn verður vís og veldur ofstuðlun.