Hmmm...eftirsóknarverður staður. Ekki væri úr vegi að gera út leiðangur á þennan framandi stað. Til þess þurfum við andefnisknúin kóbaltkafbát með jónadrifnum hlífðarskildi.
Já við getum farið í þennan rannsóknarleiðangur undir því yfirskini að:
a) ná í Ákavíti og b) veiða færeyska kafbáta
en raunverulega má kannski finna þarna tengsl milli kóbalts og ákavítis, ég meina hvað er málið með þessa 82.3 l af sjó?..
Við getum eflaust sótt um styrki þar og annars staðar.
Ég hef þó litla þolinmæði fyrir slíkum sleikjuskap. Ég hafði hugsað mér að ræna Nýsköpunarsjóð. Við dulbúum verkefnið sem e-k gróðavænlegt nýsköpunartækifæri, komust á kynningu hjá þeim og drögum þá upp byssur og barefli og heimtum skildinginn annars hafi þeir verra af.
Síðan hafði ég hug á að skipuleggja ránsferð í Bændaskólann á Hvanneyri en hef ekki alveg séð hvernig við eigum að komast fram hjá genabættu hasarsauðunum sem eru með leiserbyssur á höfðinu.
Síðan hafði ég hug á að skipuleggja ránsferð í Bændaskólann á Hvanneyri en hef ekki alveg séð hvernig við eigum að komast fram hjá genabættu hasarsauðunum sem eru með leiserbyssur á höfðinu.
Bændaskólinn á Hvanneyri hefur örugglega nóg af fjársjóðum til að styrkja þessa för. Myglar gæti beitt sýnum áhrifum á bændaklíkuna sem þar situr og við getum eflaust líka notað Vítasarkýrnar til að villa um fyrir sauðameistaranum.
Spurning hvort hægt sé að nýta sér það á einhvern hátt. Augljóslega væri betra að hafa hann í fortíðinni þar sem hann hefði getað sett/falið verkefnið á langtímaáætlun í kringum árið 1950.
Gott ef ekki.
Hann getur án efa orðið sér úti um árásargjarna róbót hunda úr járni í landi framtíðar. Hann gæti síðan grafið róbót-hundana í jörð í kringum Hvanneyri og tímastillt þá þannig að þeir virkjast í nútímanum og ráðast beint á hasarsauðina.
Á meðan sauðirnir berjast við róbót-hundana getum við laumast inn á Hvanneyri og rænt peningahirslur höfuðbólsins.
Það er annaðhvort það eða sækja bara um. Umsóknareyðublöðin fást á kjördæmisskrifstofu Framsóknarflokksins á Hvolsvelli.
Byrjar að skrifa styrklýsingu
Djöfull tekur langan tíma að fylla út öll þessi eyðublöð. Þetta æltar engan endi að taka. starir á bunkana sem bíða
Getum við ekki grafið göng inn á Hvanneyri? Þau eru víst í tísku í dag.
Rekur út úr sér tunguna og vandar sig við að fylla út næsta eyðublað
Í framtíðinni verða 100.000 kr seðlar algengir. Duga passlega fyrir einni Pespsí eða Sóða Sóla. Við látum hann senda okkur nokkra kassa af "klinki" og fjármögnum herlegheitin. Þeas ef hann hefur einhver tök á að senda hluti til baka í tíma.
-
... ég er með hugmynd, en það krefst náttúrulega þess að hann geti sent hluti aftur í tímann... og að við getum sent honum skilaboð fram í tímann, en það ætti að vera einfalt ef við höfum heimilisfangið hans í framtíðinni...
Við náum okkur í risastóran gám og fyllum með hlutum sem eru ódýrir núna en verðmætir þá... gröfum gáminn einhversstaðar og komum skilaboðum til Myglars um það hvar hann er að geyma, hann getur síðan selt þá og sent aftur til okkar einhvernveginn...
Ef það strandar ekki á öllum þessum Ef-um, hvað eigum við þá að setja í gáminn?
Helsti gallinn við þessa fínu áætlun Skabba er að Myglar er framsóknarmaður.
Ekki er hægt að treysta Framsóknarmanni.
Rétt athugað.
En við vitum þó hvert á að senda skilaboðin svo hann fái þau örugglega.
Þó svo að Myglar sé Framsóknarmaður þá er hann núna Framsóknarmaður í framtíðinni, ólíkt öðrum Framsóknarmönnum sem eru Framsóknarmenn fastir í fortíðinni.
Við náum okkur í risastóran gám og fyllum með hlutum sem eru ódýrir núna en verðmætir þá... gröfum gáminn einhversstaðar og komum skilaboðum til Myglars um það hvar hann er að geyma, hann getur síðan selt þá og sent aftur til okkar einhvernveginn...
Ef það strandar ekki á öllum þessum Ef-um, hvað eigum við þá að setja í gáminn?
Ég er alveg viss um að hárþurkkur og sjálfvirkar hurðir verði af miklum verðmætum þegar fram líða stundir. Svo gætum við sent gönguskíði, Bragakaffi og sjálfvirka veðurathugnarstöð og þó ég haldi að það gæti verið dýrmætt þá er ég ekki alveg jafn viss.
Hversu flókið ætlið þið að gera þetta?!? Þetta er kóbalt fyrir-krists-sakir! Það eina sem ykkur vantar er smávegis troll húðað með forstigsefni B12-vítamíns. Guð minn díses hef ég ekkert kennt ykkur?