Keith Richards er prýðiskandidat. Arnold Schwartzenegger kemur einnig til greina. Og sá þriðji er Rowan Atkinsson (Mr. Bean, Blackadder). Hvað segið þið um þá?
æ, hann er ábyggilega ekkert verri en margur annar
En hann er ekki kardináli frekar en Keith, Arnold eða hans hátign Rowan Atkinson.
við bara reddum því, búum til undirskriftalista og læti
Svo er ekki nauðsynlegt að vera kardínáli til að verða páfi, fræðilega séð. Svo er hægt að múta kardínálum eða hóta að koma upp um ósæmilegt athæfi þeirra. Af nógu er að taka í skítugum kústaskápum kardínála.
Eigum við ekki að fá Heiðar snyrti til að taka til hjá þeim? Henda út öllum þessum notuðu kórdrengum?
Þeir eru ekki ennþá búnir að hringja í mig útaf starfinu, ég er hálf undarlegur allur yfir þessu. Átti von á símtali strax í morgun. Kannski þeir hafi þá fallist á Bud eftir allt saman.
-
Það tilkynnist hjer með opinberlega að í framhaldi af undanfarandi umræðu höfum vjer stofnað þennan þráð í nafni Hreintrúarflokksins:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=4983
Skál ! xT
Sýpur á fagurbláum drykk og ljómar upp í fagurblárri birtu frá himnum
Ég skil nú ekki hvað Hreintrúarflokkurinn er að troða sér inn í ráðningu nýs páfa þar sem þeir trúa ekki einu sinni á boðskap kaþólikka. Búið bara til ykkar eigin ekkisens páfa sem hefur ekkert skylt með kaþólisma eða kristni.
Oseisei, svona fór nú um sjóferð þá.
En við vitum öll ósköp vel að hann er núna að skála með Drottni, sem hann helgaði líf sitt svo ástúðlega.
Skál, þú páfi sem horfinn ert, og megir þú lifa það sem eftir er í hjörtum allra manna. Því boðskapurinn sem breiddur var var af hinu góða, og okkur myndi nú farnast vel ef við aðeins gerðum einsog hann vildi.xT
hugsar
Ertu þá dáinn
út í bláinn
eins og páfinn
skellir upp úr
Ég skil nú ekki hvað Hreintrúarflokkurinn er að troða sér inn í ráðningu nýs páfa þar sem þeir trúa ekki einu sinni á boðskap kaþólikka. Búið bara til ykkar eigin ekkisens páfa sem hefur ekkert skylt með kaþólisma eða kristni.
Hvað á það að þýða að vera að velta sér upp úr duttlungafullum aukaatriðum eins og að Hreintrúarflokkurinn sé ekki kaþólskur? Við höfum aldrei látið lítilfjörleg smáatriði standa í vegi okkar. Áfram! Aldrei að víkja!
hugsar
Ertu þá dáinn
út í bláinn
eins og páfinn
skellir upp úr
ég hló svo mikið að fólk horfði á mig eins og ég væri einhver vitleysingur
Ég legg nú til að Pétur lærisveinn verði aftur settur í páfa stólinn. Það er orðið allt of langt síðan að við fengum að sjá almennilegt kraftaverk frá kaþólsku kirkjuni.
Ég skil nú ekki hvað Hreintrúarflokkurinn er að troða sér inn í ráðningu nýs páfa þar sem þeir trúa ekki einu sinni á boðskap kaþólikka. Búið bara til ykkar eigin ekkisens páfa sem hefur ekkert skylt með kaþólisma eða kristni.
Hvað á það að þýða að vera að velta sér upp úr duttlungafullum aukaatriðum eins og að Hreintrúarflokkurinn sé ekki kaþólskur? Við höfum aldrei látið lítilfjörleg smáatriði standa í vegi okkar. Áfram! Aldrei að víkja!
Ég get svosem sætt mig við Bud sé hann kaþólskur en annars held ég að hann eigi best heima í hugarheimi hreintrúnaðarflokksins en ekki undir hatti páfa.