Það fór svo einu sinni þannig að okkar ástkæri páfi þurfti að kveðja hinn jarðneska heim og halda til himna á fund Drottins. Vil ég við þetta tækifæri votta honum virðingu mína og vona að nýjum páfa muni vegna vel í starfi og gerast góð fyrirmynd kaþólikka og annarra kristinna manna.
Blessuð sé minning hans.
Blessuð sé minning páfans og gangi þeim vel að finna páfa sem naut jafn mikillar virðingar og Jóhannes Páll Páfi 2. (eða hvað)
Ég vona að það verði ekki Bandarískur páfi.
Ég vona að það verði ekki Bandarískur páfi.
Það er víst eitt af því sem er nokkurn veginn öruggt að verði ekki. Eftir misotkunarhneykslin í Bandaríkjunum er ekki möguleiki að kani komist í embættið.
Persónulega held ég enn í þá tilgátu um að Auðun verði næsti páfi.
Tja í ljósi þess að Jói II var mjög lengi á páfastóli og að svo til allir kardínálarnir sem velja þann næsta voru valdir af honum, má ætla að afturhaldssemin verði einhver.
Ég er nú í felum í kjarnorkubyrgi Bústaðakirkju og vona að þeir finni mig ekki og geri að páfa.
Heyri ég efasemdatón?
Ég fullyrði að heiðvirðari mann er ekki hægt að vinna. Bud er kempa sem lætur ekki vaða yfir sig og er akkúrat það sem pápískan þarfnast.
Og ef hinn draumur minn rættist, um að Terence Hill yrði gerður að forsætisráðherra Ítalíu, þá myndi tvíeykið geta tekið til á þessum auma skaga, ráðið niðurlögum mafíunnar með slagsmálum og komið Ítalíu á kortið aftur sem hagsældarland kaþólskunnar.