Já gott fólk. Nú er víst að konur falli margar í yfirlið, fremji sjálfsmorð eða gangi í klaustur eða framsóknarflokkinn. Ja, ef ekki allt ofangreint. Ekki síðan Bítlarnir hættu hefur eins hávær krátkór kvenna hljómað um gervalla heimsbyggð. Það ómögulega hefur gerst...Vamban er genginn út!
Já nú er ég búinn að festa ráð mitt. Það var fyrir eigi löngu að mig klófesti stúlka fegurri en nokkur önnur. Hún hreif mig með sér og byrlaði mér ástarnektar áfengari en nokkurn þann sem mér hafði áður tekist að brugga úr Admiral eða Ákavíti.
Já, gott fólk. Já og skál!Ljómar upp
Má ég verða fyrst til að óska þér til hamingju, ykkar skál xT
Ljómar uppStekkur hæð sína
Til hamingju með það Kæri Vamban......njótist vel.
Hvað heitir svo hin heppna?Roðnar óstjórnlega og borar annarri tánni ofan í gólfið
Fellur í sjálfsmorðsklaustur og gengur í framsóknaryfirlið
Til hamingju.
Svona Tina það er alger óþarfi að taka þessu svona nærri sér hann verður laus í framhalds lífinu.
Hvað er svo langt þangað til þú smitar hana af hinum banvæna sjúkdómi baggoslutiusis?
Hún verður mín hægri hönd í spillangersetrinu Landbúnaðarráðuneytinu fyrr en varir.
Vamban: Elskan, ég þarf að segja þér dálítið...
Elskan: Ó, ég vissi það! Þú ert hommi! Enginn gagnkynhneigður maður gæti verið með svona vel snyrt hár brestur í grát
Vamban: Nei,nei...ég er eins gagnkynhneigður og mögulegt er, þú getur spurt vinkonur þí-
Elskan: Ha?
Vamban: Ekkert, ekkert. Þú mátt koma við hárið ef þú vilt.
Elskan: Þetta hlýtur að vera alvarlegt, ég hef aldrei mátt það áður. strýkur hárið skjálfhent Það er fitugt...
Vamban: Nei,mjúkt elskan, mjúkt. ræskir sig Ég er gestapói.
Elskan: Ha?
Vamban: Gestapói. Á Baggalút. Þú veist, á netinu...
Elskan: Mér er alveg sama, ég er föst við hárið á þér. Losaðu mig. Hjálp, Vamban! Það er...það er byrjað að melta hendina á mér.... bráðnar
Reynir að brosa í gegnum tárin Til lukku með það, Vamban minn. Það er vonandi að stúlkan átti sig á hvurslags kostagrip hún hefur krækt sér í þerrar laumulega tár og fari vel með þig. Þú átt aðeins það besta skilið röddin brestur andartak og tárin renna örar. En mikill er missir okkar hinna gerir hlé um stund til að hemja grátinn að hafa misst þig. Hleypur háskælandi í faðm Hakuchis
Til hamingju Vimbill minn. Vonandi gerir konan sér grein fyrir hversu heppin hún er að hafa krækt í eftirsóttasta piparsvein 21. aldarinnar.
Megi samband ykkar blessast og ástin blómstra kæri minn. Þú átt það skilið.
Skál! xT
Strikar Vamban út af Listanum. Hringir í leigumorðingjann og segir honum að hann þurfi ekki lengur að vakta Vamban því drottningin er óhult fyrir honum í bili.
Til hamingju Vamban. Vonandi gerir konan sér þó grein fyrir því að þú ert háður Baggalúti og reglulegu netsambandi við félaga þína hér á Gestapó.
Já. Þér væri nær að ánetja ungfrúna Baggalúti líka. Það er henni fyrir bestu. Þú veist það vel.
Þakka ykkur öllum kærlega og skál! Jú, það mun vera á dagskrá að ánetja hana Baggalútnum blessaða eða í minnsta lagi fá'ana til að skrá sig. Lengi hefur mér vantað almennilegan kvenskörung í ráðuneytið með mér. Fengi hún ekki annars embætti og/eða einhverskonar stöðu innan ríkisstjórnarinnar? Hmmm...Vlad og Hákon? Hmmm Hakuchi og Júlía? Hmmm?