Þetta er líka ágætt.
Já... mikið á maður nú góðar minningar með þessa mynd... fær nostalgíukast
Tækir þú upp gömlu myndina, tæki ég upp auka flösku af Ákavíti þér til heiðurs.
-
Maður hefur nú látið hafa sig út í annað eins fyrir Ákavítið...
Ég er alfarið á móti því að Skabbi taki upp gömlu myndina. Fyrir því hef ég tvenn rök:
1) Ég er unglingur mikill hér á Gestapó og man ekki eftir því þegar Skabbi var með gömlu myndina. Umrædd breyting myndi því ekki verða til þess að upp fyrir mér rifjuðust gamlir tímar, heldur myndi hún eingöngu rugla mig í ríminu.
2) Ég er mikill aðdáandi herra Dylans, og upplyftist í hvert sinn sem ég sé ásjónu hans bregða fyrir. Þeim stundum sem það gerist myndi fækka verulega ef Skabbi myndi hætta að notast við hina fríðu mynd sem nú er andlit hans hér á Gestapó.
Voðalegar hræringar hafa þetta verið í ykkur.
Ég hef verið alveg eins alla mína tíð! og ég held að ég sé nú með þeim eldri hérna.
Eitt sinn minntum vjer mjög á Vladimir Lenin í útliti en svo uppgötvuðum vjer kóbalt o.m.fl.
Og Skabbi - ekki breyta um mynd, oss finnst myndin af Tal hræðileg.
Svo virðist reyndar sem flestir af helstu Bagglýtingunum (fyrstu tvær síður heimavarnaliðsins til að miða við eitthvað) hafi skipt um mynd einu sinni eða oftar:
Frelli minnti einhverntíma mjög á Ariel þjóðernishreinsi og Clint Eastwood en myndin af englinum var auðvitað langbest Flýr ofan í neðanjarðarbyrgi
Nokkrir þekktir Bagglýtingar er verið hafa hjer mjög lengi (frá 2003) hafa ef vjer munum rjett aldrei breyst. Þar koma upp í hugann voff, Mosa frænka og Glúmur.
Ætli það sé þá ekki kominn tími á myndabreytingu hjá mér... ég hef ekki verið sáttur við þessa mynd sem nú er...
Þenur brjóstkassann stoltur Já, svona var maður, ungur og stæltur.
Ég kann Enter bestu þakkir fyrir þessa miklu söguskoðun sem farið hefur fram hér. En ég hafði annars konar andlitslyftingu í huga. (þó ekki h***.is) Mér finnst ég ekki nægilega... nei annars best að segja ekkert sem gæti brugðist!
Fyrst var ég apakríli og svo maðurinn með ljáinn og síðan Powell og að lokum það sá sem ég er í dag.
En hver ertu eiginlega í dag? Hver í ósköpunum er þetta?
Fyrst hér er verið að fjalla um myndir langar mig að senda Enter mínar bestu þakkir fyrir myndina, sem hann er búinn að setja hjá æviágripi mínu. Ég er mjög ánægður með þessa mynd enda var ég í góðu formi andlega og líkamlega þegar hún var tekin.
...Svo virðist reyndar sem flestir af helstu Bagglýtingunum (fyrstu tvær síður heimavarnaliðsins til að miða við eitthvað) hafi skipt um mynd einu sinni eða oftar...
Ekki skipti ég um mynd. Ég þurfti bara að nota eitthvað meðan myndin af mér var í klippingu. Ég hef áður komið á framfæri mótmælum við myndskiptingum og ég hef ekki skipt um skoðun í þeim efnum, þó sumir séu farnir að venjast, er alltaf einhver hluti dáinn...
Fyrst hér er verið að fjalla um myndir langar mig að senda Enter mínar bestu þakkir fyrir myndina, sem hann er búinn að setja hjá æviágripi mínu. Ég er mjög ánægður með þessa mynd enda var ég í góðu formi andlega og líkamlega þegar hún var tekin.
Svo maður tali nú ekki um þennan nautnalega stút sem þú hefur á munninum. Blue steel ef mér skjöplast ekki.