Nú hef lagt til stofnun K.A.L.Ís og hef ég hér með ákveðið að Ganga til þess verks.
Mig lagar auðmjúklegast til þess að bjóða mig fram til forstöðumans þessarar stofnunar.
Ég hvet sem flessta til þess að bjóða sig fram til sarfa í K.A.L.Ís. það eru eins og stendur allar stöður lausar
Vjer erum reiðubúnir til starfa enda hjer um þjóðþrifaverk hið mesta að ræða. Jafnframt teljum vjer upplagt að steypa saman K.A.L.Ís og einkaher Magnusar H. Jakobsen sem gæti þá orðið yfirhershöfðingi K.A.L.Ís. Reyndar þarf að útbúa skipurit en augljóst hlýtur að vera að það þarf að vera til áróðursdeild, iðnnjósnadeild, öryggisgæsludeild, kóbaltdeild, andefnisdeild o.m.fl.
Já það taldi ég vera mikilvægt að sameina þessar tvær stofnanir herinn. En aftur á móti þá leit ég á K.A.L.Ís. sem sjálfstætt starfandi stofnun innan hersinns og væri í raun leiniþjónusta hersins. En hins verar þá er gríðarlegar mikilvægt að við verðum sterk stofnun sem að hefur fjármagnið til þess að sjá fyrir öllu því sem að stofnun af þessu tagi þarf svo sem laun njósnara, helerunartæki, tæki sem ekki er hægt að "Hlera" og til þess að við getum látið fólk hverfa sem að er elt af andstæðingum okkar
Myndi K.A.L.Ís verða sjálfstættstarfandi eining innan Alþjóðakóbaltmálastonuninnar eða verða samtökin rekin sem sjálfseignarstofnun byggða á frjálsum framlögum? Síðari kosturinn býður upp á geygvænlega spillingar möguleika þótt það fyrirkomulag hafi reynst vel í Súrinamíu.
Vjer höfum á tilfinningunni að starfsemi þessarar nauðsynlegu "stofnunar" gangi eigi sem skyldi sökum óskipulegra vinnubragða auk þess sem búið er að stofna FÁUÁUÚG (félag áhugamanna um árás utan úr geimnum), Geimbrasksstofnunina o.fl. Það var síðan eigi til bóta er Glúmur fjell óvænt frá langt um aldur fram. Leggjum vjer því til að þetta verði allt sameinað í Fjelag áhugamanna um geimárásir, geimskipasmíði, geimferðir, leyniþjónustustarfsemi og ofurafl andefnis og kóbalts (FÁUG3LOOAOK). Nóg er a.m.k. til af búnaði:
$32.541.757.377 og 3 cent
5 evrur
69 stk.njósnagerfihnettir (eftir er að prófa hvort 64 þeirra virka)
3 stk. móttökuloftnet 10 m í þvermál og stærri (vantar líklega 10-15 í viðbót)
6 stk. F-15 orrustuþotur
1 stk. nær fullsmíðað geimskip
Tugir hlerunartækja, nætursjónauka o.þ.h.
1 stk. kvarkatætari með leiðbeiningum
Njósna- og bögghugbúnaður
Ótiltekið magn af kóbalti (bæði venjulegu og andefni)
Ýmislegt fleira sem vjer viljum eigi að óvinir vorir viti um
slær hann utanundir
Það er ekki til nein Leyniþjónusta Íslands ALLS ENGIN! Hún er EKKI TIL!! Hún hefur aldrei VERIÐ TIL! Og ég sagði þetta ekki alls ekki, ég ER EKKI HÉRNA! Alls ekki
Slær Hilmar utanundir Á! Nuddar kinnina sína
Ég er alveg hættur að finna fyrir kinnhestunum eftir 3000 lélegar pikk-up línur á börum, en skilaboðin eru skýr, ÞAÐ er samt ekki til nein leyniþjónusta Íslands alls ekki, Ég er ekki í henni alls ekki
Er of seint að ganga í K.A.L.Í.s
Ég er alveg hættur að finna fyrir kinnhestunum eftir 3000 lélegar pikk-up línur á börum, en skilaboðin eru skýr, ÞAÐ er samt ekki til nein leyniþjónusta Íslands alls ekki, Ég er ekki í henni alls ekki
Einmitt hún er ekki til. Og þessi geisladiskur inniheldur ekki upplýsingar um ekki leynisveit íslendinga.
Er of seint að ganga í K.A.L.Í.s
Sjá þennan þráð:
http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=2251
Er ég ekki í leyniþjónustu Baggalúts? Starir þegjandi út í loftið [/s]