Það tilkynnist hjer með opinberlega að hinn horfni Síra Skammkell fær hjer með formlegar rafmæliskveðjur frá oss Sendir rafmælisbarninu 10.000 afar verðmætar biblíur áritaðar af höfundinum sjálfum.
Einnig fær Heiðglyrnir síðbúnar kveðjur Færir Heiðglyrni 20 tonn af kóbaltstyrktu járni, sömuleiðis Haraldur Austmann Færir Haraldi kóbaltstyrktan mjaðmarlið og fagurbláa kóbaltlíkkistu svo og Grýta Færir henni sjálflýsandi plútóníumteninga.
Stelpið og Dúddi fá kærar kveðjur frá Sæma og fjölskyldu, takk fyrir að vera til.
Sæmi Sæmó.
Stelpið, Dúddi og Leðurhomminn fá afmæliskveðjur í dag.
Aðrir sem hafa átt afmæli undanfarið og engar kveðjur fengið frá mér, fá innilegar kveðjur líka.
Já hæ og góðan daginn. Takk fyrir hamingjuóskirnar þið sem gáfuð þær, aðrir eru bara fífl (Hafið tíma til miðnættis til að rétta úr því).
Ég vil síðan biðjast velvirðingar á því að vera eina rafmælisbarnið í dag sem er ekki með greini. Sorrí.
Knúsar Dúdda til hamingju
Ég er sko ekkert fífl.
Og til hamingju Stelpið, Leðurhomminn og allir aðrir sem ég hef gleymt að óska til hamingju undanfarið...
Stelpið fær innilegar hamingjuóskir með daginn. Færir Stelpinu nýtt bikini í rafmælisgjöf
Dúddi fær einnig bestu rafmælisóskir. Gefur Dúdda gleraugnahylki svo hann þurfi ekki alltaf að vera með sólgleraugun á nefinu
Ég óska Stelpinu til hamingju með rafmælið. Að sama skapi færi ég Dúdda rafmæliskveðju.
Ég óska Leðurhommanum til hamingju með rafmælið, megi hann njóta dvalarinnar á botni Kárahnjúkastíflu.
Ég var að reka augun í það að ég á rafmæli, skemmtilegt það.
Þakka kveðjurnar og bikiníið.
Gefur Dúdda og Leðurhommanum sundskýlur í stíl í tilefni rafmæla þeirra
Til hamingju með rafmælið Stelpan mín!
Gefur Stelpinu inniskó
Stelpið og Dúddi til hamingju með rafmælið, megi ykkur og ykkar öllum verða allt að þúsundköllum.
Sendi Dúdda og Stelpinu innilegar rafmæliskveðjur í tilefni af degi þessum stopp
ef að þessar kveður berast of seint er það vegna tæknilegra örðgleika eða tímatruflana vegna tilrauna forsetans.
Og Grýta mín, hvernig í ósköpunum gat ég gleymt okkar fyrstu kynnum!
Kraftaverkadeginum er Grýtið kynskiptist eftir viðamestu leyniþjónustuaðgerð alþýðulýðveldisins. Glottir Til hamingju! xT
Þakka þér fyrir kæri dordingull Já sú stund gleymist ekki. Ljómar upp
Skál fyrir þér xT
Jæja þá er það blessuð stúlkan hún Grýta.
Mögnuð sem Móna lísa
Með glampa í augum þér
Leiðina valdirðu vísa
veginn að hjartan´í mér
Þinn huga mig langar að líta
og ljósið í þinni sál
Þú tendraðir glóðina Grýta
glóð þessi orðin er bál.
Af lostanum bálið brennur
og birta þess veitir mér yl.
Í æðum mér ólgar og rennur
eitthvað sem ég ekki skil.
Enginn mun ástina skilja
allra síst á það við mig
Grýta minn göfuga vilja
geymi ég fyrir þig.
Vá! Glæsilegt Vímus. Skál fyrir þér xT
Sendi þér einkapóst. Verður upp með sér, orðlaus og rjóð
Jáhérna hér! Ég missti af mínu eigin rafmæli!
Ég er búin að vera svo upptekin við að þróa nýja útgáfu af sérstöku galdra-bókasafnskerfi að ég steingleymdi að skríða út úr kofanum mínum og heimsækja ykkur hér á Gestapó. Fyrirgefið mér elsku púffsprengjurnar mínar, þið hljótið að vera orðin verulega kakóþyrst!
Ég þakka kærlega allar hlýjar kveðjur sem mér bárust í fjarveru minni. Reynir að rifja upp aldurinn en tekst ekki - sökum aldurs
Hexia!
Þú ert einn sá gestapói sem mér þykir hvað vænst um... þú færð risa knús og ef ég gæti, myndi ég gefa þér alla þá hamingju sem þú kannt að þurfa í gegnum lífið.
En í staðin færðu bókasafn.
Fær óvenju mikið ryk í augun og óstöðvandi ekkakast í kjölfarið Tah-akk Ti-igra mín, é-heg... Getur ekki sagt neitt og knúsar Tigru
Kæra Hexía!
Innilegar hamingjuóskir fáið þjér á Rafmælisdaginn frá oss við Hraunið!
Færir Hexíu þrísvarttónaðan Nornaslopp, sem hefur að geyma í óteljandi leynivösum, ógrynni af lítt leyfilegum efnum til kakógerðar. Færir Rafmælisbarninu einnig nýja Kakógerðarsleif
Neisko! Þetta kemur sér vel, vasarnir á gömlu kápunni minni voru nefnilega farnir að leka. Fer í nornasloppinn og dáist að litnum. Tekur með andakt við hinum spennandi leyniefnum og sleifinni góðu Það er aldrei hægt að eiga of margar kakógerðarsleifar, þær eiga það til að tærast upp ef ég missi mig í leyniefnatilraununum. Kærar þakkir!
Hexia fær risastóran kakópott frá mér. Ég vonast til að hann verði notaður mikið.
Vííí! Annar kakópottur! Þetta kom sér vel, því þó þessir pottar eigi að þola allt þá eru leyniefnin mín náttúrlega.... leynileg, þið vitið. Rekur Þarfa rembingskoss - á kinnina auðvitað, svo Ívar verði ekki fúll
Til hamingju Hexía. Er enginn kakóveisla?
Jú hvað heldurðu! Með þessi fínu kakógerðar tól? Flissar
Til hamingju með daginn Hexia! gefur Hexiu sérræktað kakóbaunatré í kóbaltblandaðri mold og knúsar hana svolítið
Ah, nú get ég farið að rækta mitt eigið! Takk! Vökvar þyrst kakóbaunatréð
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer óskum Hexiu hjer með formlega til hamingju með rafmælið Færir Hexiu 10.000 fermetra bókasafn í rafmælisgjöf.
Ég myndi þakka ákaflega formlega fyrir mig svona undir venjulegum kringumstæðum, en má ég ekki bara bjóða yður kakó í þakklætisskyni? Ljómar upp
Til hamingju Hexia og gjörðu svo velfærir Hexiu fallegann blómvönd og einn líter af þeyttum rjóma, bíður eftir kakóinu.
Endurlífgar blómin og setur þau í vatn. Setur tvo og hálfan dropa af afmyglunarelexír út í rjómann og átta vanilludropa líka - til öryggis Mille grazie!
Eru svo ekki allir í stuði fyrir síðbúna kakóveislu?
Skellir hráefnunum í nýja pottinn og hrærir í með nýju sleifinni MMMMMmmmmm! Langt síðan ég hef fundið svona góðan kakóilm! Gjörið svo vel!
Roðnar eins og trompet
Ég gleymdi víst að óska þér til hamingju um daginn, Hexía mín.
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Kæra Hexia þarna voru nú reyndar líka hamingjuóskir bæði frá Riddaranum og Grýtu...Hvað um það, til hamingju bara aftur.
Bölverkur Til hamingju með árs rafmælið þitt. Skál! xT
Komdu nú og láttu sjá þig oftar.
Bölverkur Til hamingju með árs rafmælið þitt. Skál! xT
Komdu nú og láttu sjá þig oftar.
Sammála Grýtu, Bölverkur þú mátt mæta oftar með þín skemmtilegu kvæði.