— GESTAPÓ —
Breytt og bætt Gestapó
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli
        1, 2, 3
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 15/3/05 14:18

Hvað er eiginlega þetta 'líf' sem allir eru að tala um hjer ?

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 15/3/05 14:20

Vertu ekkert að stressa þig á svona fáránlegum orðskrípum Vlad. Líf, huh... bara fyrir almúgann og undirmálsmenn!

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Tigra 15/3/05 20:42

‹Leiðir forsetann inn á skrifstofu sína›
Vertu ekki að velta fyrir þér svona tilgangslausum upphrópunum almúgans. Fáðu þér sæti og hvíldu þig smá með því að t.d. huga að uppáhalds listanum þínum um óvini ríkisins.

Nornakisa • Dýramálaráðherra • Lyklavörður Pyntingaklefans • Sérlegur Músaveiðari Baggalútíska Konungsdæmisins • Konunglegur listmálari við hirðina • Fólskulegur Ofsækjandi Þarfagreinis
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Helena 15/3/05 21:10

‹Eltir Tigru og forsetann inn á skrifstofuna› Gjörðu svo vel Vladimir, kóbaltbætt ákavíti. Ég mæli eindregið með að minnsta kosti 4 staupum tvisvar á dag. Að öðrum kosti er hætt við að óvinir ríkisins komist að einhverju sem þeim er ekki ætlað að vita ‹blikkar samsærislega til Vladimirs›

...hin fagra.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
feministi 15/3/05 23:08

‹Horfir skömmustuleg í kring um sig, laumast í frumritið og lagar það›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 16/3/05 10:38

Tigra mælti:

Vertu ekki að velta fyrir þér svona tilgangslausum upphrópunum almúgans. Fáðu þér sæti og hvíldu þig smá með því að t.d. huga að uppáhalds listanum þínum um óvini ríkisins.

Þetta er mjög góð hugmynd...
‹Minnist þess að forsetafrúin hefur lítið sem ekkert sjest lengi og fyllist söknuði miklum. Veltir fyrir sjer hvort henni kunni að hafa verið rænt af óvinum ríkisins eða hvort um sjerlega leynilegar aðgerðir sje að ræða. Flettir upp á líklegum sökudólgum í einum af óvinalistunum sje um rán að ræða og hefur skipulagningu hernaðaraðgerða. Sýpur á ýmsum fagurbláum drykkjum›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Júlía 16/3/05 11:06

Örvæntu ekki, Vladimir, hin ágæta forsetafrú leit stuttlega hingað inn í gær, en gaf sér því miður ekki tóm til að staldra lengi við.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 16/3/05 11:12

Það er sannarlega ljettir ‹Hættir að lesa listana yfir óvini ríkisins og fer í staðinn að hressa upp á minnið með því að lesa enn lengri lista yfir leynilegar aðgerðir á vegum forsetaembættisins›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
        1, 2, 3
» Gestapó   » Umvandanir, ábendingar, tilmæli   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: