Hvað er eiginlega þetta 'líf' sem allir eru að tala um hjer ?
Vertu ekkert að stressa þig á svona fáránlegum orðskrípum Vlad. Líf, huh... bara fyrir almúgann og undirmálsmenn!
Leiðir forsetann inn á skrifstofu sína
Vertu ekki að velta fyrir þér svona tilgangslausum upphrópunum almúgans. Fáðu þér sæti og hvíldu þig smá með því að t.d. huga að uppáhalds listanum þínum um óvini ríkisins.
Eltir Tigru og forsetann inn á skrifstofuna Gjörðu svo vel Vladimir, kóbaltbætt ákavíti. Ég mæli eindregið með að minnsta kosti 4 staupum tvisvar á dag. Að öðrum kosti er hætt við að óvinir ríkisins komist að einhverju sem þeim er ekki ætlað að vita blikkar samsærislega til Vladimirs
Horfir skömmustuleg í kring um sig, laumast í frumritið og lagar það
Vertu ekki að velta fyrir þér svona tilgangslausum upphrópunum almúgans. Fáðu þér sæti og hvíldu þig smá með því að t.d. huga að uppáhalds listanum þínum um óvini ríkisins.
Þetta er mjög góð hugmynd...
Minnist þess að forsetafrúin hefur lítið sem ekkert sjest lengi og fyllist söknuði miklum. Veltir fyrir sjer hvort henni kunni að hafa verið rænt af óvinum ríkisins eða hvort um sjerlega leynilegar aðgerðir sje að ræða. Flettir upp á líklegum sökudólgum í einum af óvinalistunum sje um rán að ræða og hefur skipulagningu hernaðaraðgerða. Sýpur á ýmsum fagurbláum drykkjum
Örvæntu ekki, Vladimir, hin ágæta forsetafrú leit stuttlega hingað inn í gær, en gaf sér því miður ekki tóm til að staldra lengi við.
Það er sannarlega ljettir Hættir að lesa listana yfir óvini ríkisins og fer í staðinn að hressa upp á minnið með því að lesa enn lengri lista yfir leynilegar aðgerðir á vegum forsetaembættisins