Orgar úr hlátri
Þið eruð að grínast með þennan gaur er það ekki?
Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með ykkur hæðast að öllu sem heilagt er.
Nei Trúmann, í augnablikinu er aðallega verið að hæðast að þér, og seint mun ég álíta þig heilagann.
Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með ykkur hæðast að öllu sem heilagt er.
Elsku karlinn minn. Þú þarft ekkert að fylgjast með okkur.
Ég handlék morfínsprautu í dag, get ég þá sótt um vinnu hér?
Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með ykkur hæðast að öllu sem heilagt er.
Ég hef sjaldan séð jafn mikla hæðni í gagnrýni á hæðni. Var ekki eitthvað máltæki sem lýsti þessu svo vel... eitthvað með bjálka og flís. Það var alla vega úr viði svo mikið man ég.
Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með ykkur hæðast að öllu sem heilagt er.
Út úr mínum húsum helgislepju-slefberi.
Fær sér 20 töflur af róró.
Kemur inn með bauga niður á hné
Vímus, ég verð að fá eitthvað við svefnleysi...
Feit jóna og kynlíf ætti að duga Anna mín.
Læðist inn á þráðinn, skjálfandi af hræðslu
Vímus, hvað áttu við Raunheimafælni?
Fær oföndunarkast við tilhugsunina eina um Raunheima
Læðist inn á þráðinn, skjálfandi af hræðslu
Vímus, hvað áttu við Raunheimafælni?
Fær oföndunarkast við tilhugsunina eina um Raunheima
Elsku kallinn minn! Fyrirgefðu þennan drátt sem orðið hefur á svari frá mér.
Raunheimar eru í flesta staði ömurlegir og best er að forðast þá í lengstu lög en það verður víst ekki hjá því komist að reka nefið þar inn annað slagið. Það skyldi þó enginn maður gera algáður. Ég ætla þvi að skrifa uppá amfetamín, fenmetralín og dexedrín sem þú krossar svo með rohypnol, paxal og trion. Þessi blanda kemur öllum í góðan gír einkum ef vel er drukkið af áfengi með.
kveðja Vímus.
Hér er nærri ár síðan einhver hefur farið um. Fer að þrífa biðstofuna og ber inn nýjan stafla af gömlu Se&Hør og öðru álíka
Þá er ekkert annað að gera en að bíða eftir doktornum. Held ég geti fullyrt að hann er allavegana ekki í meðferð.
Notar tækifærið til að láta greipar sópa um óvaktaða lyfjaskápa
Notar tækifærið til að láta greipar sópa um óvaktað gamalt lesefni
Lætur Greipar sópa og súra líka
Þetta var nú orðið frekar ógeðslegt. Óþarfi að þú þrífir hérna Rattati, Greipar gerir það.
Lætur Greipar sópa og súra líka
Þetta var nú orðið frekar ógeðslegt. Óþarfi að þú þrífir hérna Rattati, Greipar gerir það.
Hvað er súra ?Klórar sér í rassinum
Hvað er súra ?Klórar sér í rassinum
Færeyskt lýsingarorð yfir nærbuxurnar þínar?
Hvað er súra ?Klórar sér í rassinum
Færeyskt lýsingarorð yfir nærbuxurnar þínar?
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Jarmi klikkar ekki sko....