Þú ættir að geta brallað eitthvað sjálfur. Horfir undrandi á þennan vælandi kokk
Sæll doktor Vímus.
Ég er í vandræðum með kveðskapargenin mín.
Áttu eitthvað við´ð´í?
Mig langar svo mig langar svo að lifta mér á kreik. Kæri Vímus er til eitthvað við því ?
Ég er ófrískur, en eru ekki Salka og Bakkabræður á undan?
Þau eru ekki stödd hér svo þeirra krankleikar verða að bíða.
Jafn lauslátur og drykkfelldur sem þú ert þá undrar mig ekki að þú skulir vera ófrískur.
Andskoti ertu orðin magamikill! Ætli sé ekki best að byrja á lifrinni
Starir þegjandi út í loftið og bankar og hlustar Dordingul faglega
Það er nokkuð ljóst að hér er ekki nýr Dingli í uppsiglingu. Ljómar upp
Helvítis lifrin og brisið eru hinsvegar betur geymd í Sorpu.
Hjartað ætti þó að hökkta eitthvað fram á sumar.
Ég sé enga ástæðu til að eyðileggja þennan stubb sem þú átt eftir að tóra með erfiðum lyfjagjöfum. Þú ert eflaust með hepatitis frá A til Ö
Nei minn kæri, nú eru það vökulyfin og sterkustu verkjalyf sem duga. Svefninn skaltu spara þar til í kistuna er komið. Kannske vissara að panta réttu stærðina sem fyrst.
Dexamfetamín, amfetamin sulfa, methamfetamin og reyndu að krækja þér í lyftiduft frá Litháen. Þetta krossarðu með morfíni, petidíni og contalgein. Taktu fenergan ef þig flökrar af moffanum. Þessu skaltu kingja með ómældum bjór og ákavíti.
Starir þegjandi út í loftið og skrifar síðan bunka af lyfseðlum
Jæja kallinn! Þá er bara að drífa sig í djammið. Við skulum fá okkur í eitt glas áður og smá meðlæti. Skál
Mér sýnist andlegri og líkamlegri heilsu margra hér hafa hrakað það illilega að í óefni stefnir.
Ég tel því fullkomlega tímabært að opna heilsugæslu Vímusar aftur.
Margri hef ég mannleysunni bjargað
metnað vakið ræfilsdruslum hjá.
Ræflum þessum hefðu flestir fargað
færni mín, kom vel að notum þá.
Kæri Vímus. Þyrftir þú ekki að leyta þér hjálpar sjálfur áður en þú býður öðrum hjálp?
Kæri Trúmann.
Þyrftir þú ekki að fara i rass og rófu áður en þú skiptir þér af öðrum ?
Kæri Vímus. Þyrftir þú ekki að leyta þér hjálpar sjálfur áður en þú býður öðrum hjálp?
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Ert þú ekki að villast helvítis gerpið þitt? Ef einhver er alvarlega hjálparþurfi þá ert það þú og ég skal með ánægju veita þér þá hjálp sem er fólgin í því að sparka þér öfugum út.
Gefur fyrirbærinu drag í rassgatið sem svífur yfir þröskuldinn
Vímus, áttu stera?
Kæri Trúmann.
Þyrftir þú ekki að fara i rass og rófu áður en þú skiptir þér af öðrum ?
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið
Orgar úr hlátri
Þið eruð að grínast með þennan gaur er það ekki?
Hann ætti nú bara að fá að vita hvað ríkir mikill kærleikur hérxT Hikk og skál.
Já, hann er mikill kærleikurinn hér á Gestapó. Trúmann vertu velkominn og fáðu þér eina panodil hjá Vímusi.
Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með ykkur hæðast að öllu sem heilagt er.
Nú væri gott að þú nefndir nokkur heilög atriði svo við vitum af hverju við ættum ekki að hæðast.