Hugmynd að kombakki...
Þið sem hafið ekki séð ykkur fært að mæta undanfarið vegna anna eða annarra annarlegra annmarka (ansi hljómar þetta annars undarlega)...
Ég legg til að þið ákveðið öll sem eitt að mæta á fyrirfram ákveðnum tíma. Ég legg til að næsta sunnudagskvöld verði fyrir valinu og að þá mæti allir sem einn...
Með því að hafa svona langan fyrirvara, þá geta menn dottið í hug efni í nýja snilldarþræði, snilldarfélagsrit og annað sem getur gert þetta kvöld sem eftirminnilegast.
Vil ég ekki nefna neina á nöfn hvað þetta kombakk varðar, en þið vitið öll hver þið eruð... ég hef nefnilega trú á að enginn fastagestur Gestapó geti yfirgefið það svæði einn tveir og þrír og því væri dagsetning sem þessi ákveðinn hvati fyrir ykkur til að mæta elskurnar mínar....
Ég mun sjá um guðaveigarnar... Ákavíti á línuna (Vladimir sér örugglega um að redda ný-últrakóbalt-dufti)...
Bravó, skál Skabbi. Það er fátt sem toppar gott kombakk.
Ég hef svo sannarlega séð mér fært um að mæta á Gestapó undanfarna daga, ykkur til vonbrigða. Glottir eins og fífl
Ég er heldur ekki fullorðin fyllibytta og kem auðvitað ekki á slíka samkomu (eins og venjulega).
Þetta verður spennandi. Ég hef ekki fengið ný-últrakóbalt-duft í langan langan tíma.
Já, verður þetta ekki spennandi... margir sem gaman væri að sjá aftur í ham...
Vér komum með ný-últrakóbaltsduft, elipton Veltir fyrir sér mögulegum skotmörkum, plútóníum og eitthvað af nýjum þráðum og félagsritum...
Æ, elsku hlandpungarnir mínir... Ætli maður verði ekki að líta við og gera allt kolbrjálað eins og venjulega? tekur á sprett og hleypur um alla veggi með tóma ákavítisflösku og iðrast þess að hafa tæmt hana
Þetta verður svoleiðis últraspennandiStekkur hæð sína og vel það
Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?
Ég býst við alsherjar kombakki, ég ætla t.d. að vera sjálfur með kombakk, mæti líklega snemma á sunnudaginn og segist vera farinn í afvötnum og kem síðan með krafti á sunnudagskvöldið í alsherjar kombakki... hehe
Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?
Skráðu þig út hálftíma fyrir Kombakkið, en gættu þess að kveðja allt og alla með virktum fyrst. Þá er þér óhætt að snúa aftur endurnærð.
Hvað þarf ég að hafa verið dulbúin lengi til að geta tekið þátt í kombakki?
Skráðu þig út hálftíma fyrir Kombakkið, en gættu þess að kveðja allt og alla með virktum fyrst. Þá er þér óhætt að snúa aftur endurnærð.
Já, þetta er góð hugmynd hjá þér Júlía. Ég stefni á að bráðamóðgast eða örmagnast heiftarlega á sunnudaginn.