ATH: Ég er ekki kátur í alvörunni, þetta er bara tilraun.
Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið.
Endar á punkti. Hitt gerir það ekki.
klórar sér í höfðinu
Byrjar ekki á stórum staf.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og sér frekast er unnt
Endar á bili.
---
Asnist til að laga þetta, ritstjórnarmeðlimir! Hvurslags leti er þetta í ykkur að nenna ekki að athuga hvort þetta samræmist ekki reglunni? Það er ömurlegt að þurfa að horfa upp á þessa ónákvæmi, Enter.
Ég er ekki sáttur við þetta. Alls ekki.
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og sér frekast er unnt
Ég vil benda fólki á að leiðrétta þessa sviðsskipun.
Til dæmis myndi sviðsskipunin hljóma svona fyrir mig,
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og henni frekast er unnt ,
svona fyrir karlverur;
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og honum frekast er unnt
og svona fyrir bauv;
Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og því frekast er unnt
Þetta er hárrétt athugað ... en hvernig á kóðinn að skera úr um kyn? Klórar sér í hausnum
Meinti nú að hver og einn gæti lagað þetta að sjálfum sér.
Ah, ég skil.
Þú ert vitringur, Steinríkur. Skál!
Ég er ekki ennþá búinn að sjá neina breytingu Enter, letinginn þinn.
Og skammast þín svo mikið fyrir fíknina að þú felur nafnið þitt í innipúkalistanum, ljóti albínóinn þinn.
Bleiu, ekki bleyju. Leiðrétta smábörnin fóstruna sína?
Bleyja eða bleia, hvort tveggja er rétt Smábaggi minn. Nema að "bleia" er að detta út, hitt þykir fallegra býst ég við.
Hættu þessu rugli. Þráðurinn er stofnaður til að nöldra.
Vel á minnst, það er ömurlegt að þurfa að sjá þessa hræðilegu gelgjuskammstöfun „lol“ hægra megin á síðunni.
Bíddu nú við Smábaggi minn. Þessi gelgjulega framsetning er sett þarna til að koma í veg fyrir notkun á því hér í birtingarhæfu formi.
Mundu að taka strumpið þitt og strumpaðu þetta strump tvisvar á dag. Taktu svo í strympilinn og strumpaðu eitthvað við hann.