— GESTAPÓ —
Athugasemd vegna norðurljósa
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/2/05 23:04

Að gefnu tilefni og vegna fjölmargra fyrirspurna viljum vér hér með koma því formlega á framfæri að stórkostleg norðurljós er sjá mátti í kvöld tengjast eigi tilraunum vorum með elipton í háloftunum. Og hvort slíkar tilraunir hafa einhverntíma verið gerðar er ríkisleyndarmál.

Umrædd norðurljós voru sérlega björt og á mikilli hreyfingu og litur þeirra rauður, bleikur og hvítur en eigi sá hefðbundni græni litur er venjulega einkennir þau. Óvenju mikið hefur verið um svona í vetur og ættu þeir Bagglýtingar er njóta vilja náttúrufegurðar og sjónarspils náttúrunnar að líta til himins sjáist einhverntíma í heiðan himin fyrir éljaskýjum.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 8/2/05 00:15

Mig grunar ekki eina sekúndu að ekki sé möguleiki á að engar Elipton tilraunir séu í gangi... og horfi með lotningu á þetta sem ekki er líklegt að sé ekki um að ræða tilraunir með Elipton, sem stenst þó varla...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermir 8/2/05 00:20

Ég get svosem gefið mig fram fyrst þetta er komið í umræðuna. Ég á sök á þessum norðurljósum. Ég er að vinna upp í skuld sem ættingi minn efndi til þegar hann seldi sérstaklega falleg norðurljós, sem hann svo afhennti aldrei.

Norðurljósin framkalla ég með áratuga-gömlu safni mínu af ísskápa-seglum, festum á risavaxna hálsfesti úr rafi (sem móðir mín eignaðist á hippa tímanum). Svo er þessi bolti festur í mittisband úr gömlum silki baðslopp og stend ég uppi á þakinu heima hjá mér, sveiflandi herlegheitunum.

Fleira er ekki í fréttum. Verið þið sæl.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 8/2/05 22:28

Skabbi skrumari mælti:

Mig grunar ekki eina sekúndu að ekki sé möguleiki á að engar Elipton tilraunir séu í gangi... og horfi með lotningu á þetta sem ekki er líklegt að sé ekki um að ræða tilraunir með Elipton, sem stenst þó varla...

‹Reynir að átta sig á hvort þetta þýði að leynilegar upplýsingar hafi lekið út en gengur erfiðlega›
En hvað sem öðru líður tilkynnist hér með opinberlega að öll norðurljós og suðurljós eru hér eftir eign Hreintrúarflokks Baggalútíu og verða notuð í þágu trúboðs ‹Ljómar upp og sér fyrir sér 'kraftaverk' á himnum›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 9/2/05 09:52

Augnablik... heita Norðurljós ekki 365-miðlar í dag?? ‹flissar óstjórnlega og gífurlega um leið og hann skrönglast hálf afvelta af hlátri út úr akademíunni›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 9/2/05 13:56

Jú, nafni þeirra var breytt til að þeim yrði síður ruglað saman við alvöru norðurljós. Sem eigandi þeirra hefði Hreintrúarflokkurinn auk þess getað farið í mál við 365-miðla (eða hvað það nú heitir, vér erum ósáttir við þetta nýja nafn).

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hermir 9/2/05 17:27

Er svona nafngift ekki nokkuð augljós með tilliti til undanfara eins og t.d. Og Vodafon? Næst kemur fatahreinsunin "Blessaður hoppaðu í hreinsunareldinn ehf." --- samhengið lítið sem ekkert og slíkt er móðins.

Fleira er ekki í fréttum. Verið þið sæl.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Steinríkur 9/2/05 19:07

Hermir mælti:

Er svona nafngift ekki nokkuð augljós með tilliti til undanfara eins og t.d. Og Vodafon? Næst kemur fatahreinsunin "Blessaður hoppaðu í hreinsunareldinn ehf." --- samhengið lítið sem ekkert og slíkt er móðins.

Af gefnu tilefni vil ég minna á það að logsuðutæki og annar hreinsunareldur eru ekki ákjósanlegur blettahreinsir.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gvendur Skrítni 10/2/05 11:41

...og aldrei geyma rafgeymasýru í mýkingarefnisbrúsa. ‹Brestur í óstöðvandi grát›

~~ ÞETTA SVÆÐI TIL LEIGU ~~ •  • X - Gvendur 2015!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísdrottningin 24/3/05 04:04

Það er svolítið spes að hlusta á Norðurljósin.
Ég er svo lánsöm að hafa séð og heyrt upptökur af norðurljósum yfir Íslandi, frá gervihnetti.

-Já það er sko margt skrýtið í kýrhausnum - Æðstastrympa - Höfundur skálarinnar - Hálendismálaráðherra -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 24/3/05 13:23

Hvað segja þau gott?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísdrottningin 26/3/05 15:56

Það brakar og snarkar í þeim

-Já það er sko margt skrýtið í kýrhausnum - Æðstastrympa - Höfundur skálarinnar - Hálendismálaráðherra -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Coca Cola 12/4/05 18:05

Í media player er svona vizualization sem er "eins" og norðurljós, það væri gaman að snúa því reikniriti við og mata það á alvöru norðurljósum og sjá hvaða tónlist kæmi út.

Tvö glös á dag - alla ævi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/4/05 20:20

Góð hugmynd. Tónlistin hlýtur að vera góð því þau hætta ekki að dansa.

Þá er bara að útvega loftbelg og ryksugu. Næst þegar norðurljósin fara á stjá, þá förum við í loftið og ryksugum þau í vélina og vörpum í gegnum media pleierinn.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gvendur Skrítni 15/4/05 16:51

Snilldar hugmynd, ég skal redda ryksugu.

~~ ÞETTA SVÆÐI TIL LEIGU ~~ •  • X - Gvendur 2015!
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 15/4/05 18:10

Ég fer í seglagerðina Ægir í leit að almennilegum tjöldum fyrir loftbelginn.

‹Finnst ónotalegt að Gvendur skuli alltaf vera að blikka hann. Ákveður að vera ekki einn með honum í loftbelgnum.›

GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Smábaggi 15/4/05 18:11

Gvendur Skrítni mælti:

Snilldar hugmynd, ég skal redda ryksugu.

Viltu ekki laga undirskriftina þína? Það er dálítið af málfræðivillum o.fl. þarna..

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Gvendur Skrítni 16/4/05 04:25

Smábaggi mælti:

Gvendur Skrítni mælti:

Snilldar hugmynd, ég skal redda ryksugu.

Viltu ekki laga undirskriftina þína? Það er dálítið af málfræðivillum o.fl. þarna..

Ekki vitlaus hugmynd, þetta er svoleiðis hundgömul og grautfúl undirskrift! ‹Glottir eins og fífl›

~~ ÞETTA SVÆÐI TIL LEIGU ~~ •  • X - Gvendur 2015!
     1, 2  
» Gestapó   » Vísindaakademía Baggalúts   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: