Mig langar að vita hvort að hér sé grundvöllur fyrir því að setja inn ritgerð um Heilaga Þýsk-Rómverska keisaraveldið? Ef svo er þá hef ég vinnu nú þegar en ef að svo er ekki þá sleppi ég því bara.
Ja, ég persónulega hef ekkert á móti því. Þetta er allavega rétta svæðið fyrir slíkt.
Já ég taldi að svo væri.
Pahh, kjánaskapur, veit ekki af hverju en kjánaskapur engu að síður. Annars ágætis hugmynd.
Ef þú skrifaðir þessa ritgerð þá áttu endilega að smella henni hér inn. En ekki láta okkur fá þessa sterílu útgáfu sem þú ætlar að nota í skólanum, láttu okkur fá directors-cut, annað er yfirleitt álíka kjötmikið og marglittur.
Ég er ekki að fara að skrifa þetta fyrir skólann ég er ekki í sögu að svo stöddu heldur eingöngu vegna áhuga.
Þetta er sannarlega gott og þarft framtak hjá þér Bismarck. Ég vonast til að sjá ritgerðina á næstunni.
Ég er orðinn frekar þreyttur að bíða eftir þessu, þú reynir á þolinmæði mína.