Nú fyrst var mér komið á óvart með viðbrögðum hér inn á Baggalút! - Hafið þið einhverntíma heyrt um sögumann? - Ég ólst upp við þveröfugar aðstaæður en þær sem fram koma í ritinu, ekki að ykkur komi það við, en margt er þarna að finna sem passar við uppeldi og lífshlaup tveggja vina minna. Annars þakka ég nú hlý orð.
P.s. Ég er ekki þunglyndur eða á bágt á nokkurn hátt - sem gefur þeim sem vilja enn meiri ástæðu til að láta mig pirra sig... Mér er hins vegar vel við alla þá sem hér dvelja.
Þetta var gott félagsrit, vel skrifað og sást það best á viðbrögðunum. Það voru hinsvegar margir sem tóku þessu sem einhverju raunverulegu og þar er ekki við þig að sakast því ritið er flokkað sem Saga og hefði því öllum átt að vera ljóst að hér var ekki alvara á ferð.
Hinsvegar er kannski spurning hvort það ætti að vera betur merkt hvort um er að ræða sögur, pistla eða dagbækur.
Mér er hins vegar vel við alla þá sem hér dvelja.
Þú sýnir það með undarlegum hætti, félagi.
Mér er hins vegar vel við alla þá sem hér dvelja.
Þú sýnir það með undarlegum hætti, félagi.
Haltu kjafti Þarfi! Skríddu upp í boruna á þér, éttu þinn eigin saur og drepstu! (Þetta er sumsé Finngálknska fyrir "Þú ert ágætis náungi")
Flissar
Ah, takk. Þú ert líka ömurlegur fáviti og hasshaus.
Þið eruð öll helvítis skítapakk og montrassgöt.Gefur frá sér vellíðunarstunu
- Ég ólst upp við þveröfugar aðstaæður en þær sem fram koma í ritinu, ekki að ykkur komi það við, en margt er þarna að finna sem passar við uppeldi og lífshlaup tveggja vina minna. Annars þakka ég nú hlý orð.
Þá veistu hvað hægt er að segja vinum þínum, þeim óska ég alls hins besta.
Ég viðurkenni fúslega að ég tók ekki eftir sögumerkingunni efst enda fangaði textinn augu mín frekar fljótt. Ekki hætta að skrifa, það vantar nýja rithöfunda sem kunna að skrifa raunsæjan og einlægan texta. Þetta var einn af þeim. Bravó.
Þið eruð öll svo yndæl að ég ætla ekkert að fara að ritskoða þetta... hehe
Þið eruð öll svo yndæl
Miðað við tóninn í fyrri innleggjum hér getur þetta misskilist sem svo að þér hatið alla hér Starir þegjandi út í loftið
Til að misskiljast ekki ætla ég að halda mér hlutlausum í þessum máli. Þú ræður því alveg sjálfur hvort þú skrifar meira Finngálkn.
Starir flóttalega út um gluggann
Til að misskiljast ekki ætla ég að halda mér hlutlausum í þessum máli. Þú ræður því alveg sjálfur hvort þú skrifar meira Finngálkn.
Starir flóttalega út um gluggann
Nú er ég ekki viss - en ég held að ég þakki þér fyrir???
„Éttu þinn eigin saur og drepstu“ - Þetta er náttúrulega óþolandi orðfæri og með öllu ósæmandi krakkar mínir.
Eins og þetta var nú orðið fínt alltsaman. Hugsar með hryllingi til þess að þurfa að skrifa enn einn „að gefnu tilefni“ - pistilinn
Já, svona gengur ekki. Ég prófaði þessa umræddu setningu, „Éttu þinn eigin saur og drepstu“ á nokkrum þeim sem urðu á vegi mínum í gær; Myglari og Spesa á kaffistofunni, skósmiðnum á neðri hæðinni, blaðbera, þekktri sænskri dægurlagasöngkonu, heilaskurðlækni á frívakt, skuggalegum náunga að nafni Alfreð, íslensk/írskum fjárhundi og móður minni.
Í yfirgnæfandi meirihluta tilvika virðist setningin með öllu óviðeigandi, í 50% tilvika kallar hún fram óstöðvandi grát og í 14% tilvika vel útilátið kjaftshögg. Aðeins þessum Alfreð þótti þetta ógeðslega fyndið og bauð mér upp á brennivín í Svala.
Þess má þó geta, að hundinum og Svíanum stóð nokk á sama, þó hvorugur færi að ráðum mínum.

Hmm.. þau hafa tekið þessu eitthvað illa..
Meiri viðkvæmnin í sumu fólki alltaf ...