Það er orðið opinbert að Maiden spilar í Egilshöll 7. júní. Ég ræð mér ekki fyrir kæti og hef skoppað um og hummað slagara eins og Wrathchild og Run to the hills. Jibbí skibbí
Þetta er alveg hreint ótrúlegt. Loksins, loksins fær maður að bera þessa ótrúlegu snilldarlistamenn augum.
Rokk og ról!
Hlær og bendir á aulana sem voru ekki á Hróa 2003 Hí!
Ullar á Tinu
Dansar og syngur við Run to the hills Ég er að - Farað sjá- Maiden Aftur- Jájájá! Ekki þið - Nanana! Hí á ykkur aulanaaaa! Slammar SÓLÓ!
Ég ætla líka að sjá Maiden ... þó ég fari ekki á Hróa. Fyrst að Múhameð vildi ekki koma til fjallsins þá hefur fjallið komið til Mýhameðs.
Ljómar upp og slammar
Ég ætla líka að sjá Maiden ... þó ég fari ekki á Hróa. Fyrst að Múhameð vildi ekki koma til fjallsins þá hefur fjallið komið til Mýhameðs.
Ljómar upp og slammar
Et þú þessi Mýhameð? Fór fjallið sumsé bara til næsta í símaskránni? Starir þegjandi út í loftið
Já ... ég er Mýhameð, konungur mýflugnanna. Flissar
Snýr sér í átt að Mývatni og biður
Þetta eru sannarlega góð tíðindi, altsvo koma Járnfrúarinnar. Finnst mér rétt að þeir trúföstu áhangendur sem einnig sáu blessuðu gömlu mennina í Laugardalnum á síðustu öld ættu að fá ríflegan afslátt.
Um Hróðmarskeldu hef ég eitt að segja: Að fara á þessa daundrullugustu útigangshátíð Evrópu til að „skemmta“ sér er eins og að fara í sund með danadrottningu - þér drepleiðist allan tímann, þú rennblotnar og þegar þú kemur uppúr er búið að stela af þér sígarettunum.
Slær Enter utan undir Hvernig...hvernig vogarðu þér að segja svona um minn heittelskaða!? Skrímslið þitt! Brestur í óstöðvandi grát
Tekur utan um Tinu og huggar hana
Enter, þetta var illa sagt! Dragðu orð þín til baka, ellegar munu afleiðingarnar verða herfilegar!
Snöktir og snýtir sér í hárið á Þarfa Af hverju er hann svona vondur við mig?
Þetta er satt. Þú getur eins skriðið upp í bakraufina á óþvegnum öldruðum úlfalda með landabrúsa og ferðaútvarp.
Hágrenjar
Steytir hnefa í Enter og þurrkar á sér hárið
Þú ert hér með kominn á svarta listann! Heyrir þú það - svarta listann!