Akkúrat
Það er ekkert varið í Þjóðhátíð í Eyjum!
Víst!
Það er ekkert gaman að vera ódrukkinn með drukknum!
Víst!
Það er ekkert gaman að vakna þunnur!
Akkúrat!
Svefnleysi veldur ekkert þynnku!
Akkúrat
Norskir þættir um kynlíf eru ekkert spennandi!
Akkúrat ?? Klórar sér í höfðinu
Rigningin er sko bara ekkert góð!
Víst. annars væru engir sveppir.
Kveðist á væri ekkert betra án lappa.
Akkúrat.
Það er ekkert að því að vakna snemma á sunnudagsmorgnum.
Akkúrat!
Ekki er hundi út sigandi!
Akkúrat. Sendum Grágrím.
Það er bara ekkert góð hugmyd.
Akkúrat! Hann myndi bara villast.
Mörsugur er alls ekki dimmur mánuður.
Víst.
Það er ekkert útlit fyrir að það fari að birta neitt að ráði á næstunni.
Víst.
Handbolti er ekki íþrótt sem sameinar þjóðina...
...í vitleysisgangi.
Víst!
Íslendingar eiga ekkert erindi á handboltavöllinn.