— GESTAPÓ —
Gestapói svarar. Leiðinlegur leikur Galdra.
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl
        1, 2, 3 ... , 15, 16, 17  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 10/10/07 19:37

‹knúsar Tígru fast og lengi fyrir þessi fallegu orð›
Tígra er algjörlega unaðslegur gestapói sem fer ekki svo auðveldlega úr jafnvægi, ég hlakka alltaf til að sjá það sem hún skrifar næst.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 10/10/07 19:39

Dula er Gul og falleg, svo er hún líka stórskemmtileg.

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Næturdrottningin 10/10/07 19:41

Ég er náttúrulega bara sammála Tígru. Dula er náttúrulega bara alveg yndisleg. Hún spáir fyrir manni, og er góð að spjalla við. Hún er með einn yndislegasta hlátur sem ég heyrt og er ferlega skemmtileg manneskja. Ég myndi segja að Dula sé einnig einn af mínum uppáhalds póum. Dula fær líka KNÚS frá mér...
Dula, þú ert frábær!

Sandkassafíkill með meiru... Söngdíva Baggalúts
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 10/10/07 19:43

‹Knúsar Næturdrottninguna innilega› ‹Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið›

Jiminn einasti þið eruð bara undursamleg bæði tvö.[/s]

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Galdrameistarinn 10/10/07 21:04

Dula er alger dúlla.
Svo er hún mikill mannvinur.

Sofandi vert á Kaffi Blút nema þegar hann er vakandi. • Skemmdarverka og hryðuverkamaður í hjáverkum, aðalega á kveðskaparþráðum.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 10/10/07 21:32

‹Heldur sig hafa villst inn á "Segðu eitthvað fallegt um Gestapóann á undan"... fer aftur›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 10/10/07 21:53

blóðugt er kjarnakona, sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hagyrðingur svo af ber, og mætti vera miklu virkari. Hún er alveg laus viða allan tepruskap og svarar fyrir sig ef á hana er hallað á kraftmikinn og vel skiljanlegan hátt. Hún er líka vinur vina sinna og á þá marga. Hún er eldrauð á litin eins og nýskorið lamb að hausti, og það fer henni afskaplega vel.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 11/10/07 14:01

Regína telst til þeirra eigi svo mjög mörgu Gestapóa er birst hafa hjer nánast fullskapaðir frá fyrsta degi án þess að þurfa að ganga gegnum langa og stranga nýliðaþjálfun, innflytjendahlið, nýliðaskelfa, ábendingar málfarssjerfræðinga eða eitthvað hliðstætt. Hefur síðan laumupúkast, ort, EMBLAst, átt stóran þátt í sterfsemi Hlerunarstofnunar, bent á ofnotkun kláms í kveðskap o.m.fl. Yrði innlegg þetta of langt ef allt yrði talið upp.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Huxi 11/10/07 22:58

Vladimir Fuckov er hér í Baggalútíu fremstur manna á flestum sviðum. Hann er harðduglegur og fylginn sér í forsetastarfinu en fer þó með vald sitt af stillingu. Ósérhlífni hans er einstök er kemur að því að vernda Ríkið fyrir óvinum þess og einnig er hann klókur og útsjónasamur við að útvega Ríkinu nægar birgðir hergagna og kóbalts. Hann er hreintrúarmaður er kemur að stafsetningu og mættu fleiri taka hann sér til fyrirmyndar á því sviði. Og svo kann hann að yrkja...

Misheppnaður valdaræningi * Efnilegasti nýliði No: 1 * Doktor í fáfræði * Faðir Gestapóa * Frændi Vímusar, Madam Escoffier og Herbjarnar Hafralóns * Forstöðumaður Veðurfarsstofnunar Baggalútíska Heimsveldisins * Forstjóri PRESSECPOL * Grænn
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 11/10/07 23:01

Huxi er einn af þeim sem manni finnst alltaf hafa verið hér í Baggalútíu vegna óaðfinnanlegrar framkomu, skemmtilegra innleggja og ótrúlegrar þekkingar á aðstæðum og fyrri sögu gestapóa, hann er vel máli farinn og er besta skinn þannig að ómögulegt er að setja nokkuð útá hann þó hann sé sk nýliði.

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/10/07 22:15

Dula hefur skínandi gula ásjónu þannig að e.t.v. mætti kóbaltneyslan vera ögn meiri. Hún er einn virkustu Gestapóanna og að öðrum ólöstuðum helsti sjerfræðingur Gestapósins í dúfum, pipar, kostum og kynjum.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 13/10/07 22:23

Elsku Vlad er höfuð og herðar baggalútíu og honum til heiðurs legg ég til að allir gestapóar sem mæti á árshátíð vora verði bláklæddir frá toppi til táar. Og til heiðurs honum verði allir með bláan drykk til að hægt verði að skála fyrir Vlad forseta vorum og fósturjörð.‹hrópar fjórum sinnum Húrra›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 13/10/07 22:48

‹Ljómar upp eins og 7500 W plútóníumljósapera en finnst þó að frekar ætti að skála fyrir ritstjórn›

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Dula 13/10/07 22:51

Vladimir Fuckov mælti:

‹Ljómar upp eins og 7500 W plútóníumljósapera en finnst þó að frekar ætti að skála fyrir ritstjórn›

Ég vil benda á að Vlad er hér meira en nokkur úr ritstjórn og er líka friðargæsluliði þannig að hann er verðugur fulltrúi ritstjórnar.‹Gefur frá sér vellíðunarstunu›

Kosta og kynjamálaráðherra Baggalútíu. •  Forsetafrú, líka PRINSESSA og settur heilbrigðismálaráðherra (skv ráðherra og embættismannalista baggalútíu ) •  Gestgjafi Duludjammsins. • 22. kast er mitt !
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sundlaugur Vatne 12/12/07 15:47

Hún Dula virðist gul en í raun er hún gull því hún ber af örðrum Gestapóum sem gull af eiri. Hún er ekki aðeins stórglæsileg svo gustar af heldur er hún einnig orðheppinn og skjót til svars að það er aðdáunarvert. Svo er hún líka mikil sundkona og hefur unnið hvert sundmótið af örðu. Það er unun að horfa á Dulu synda, ekki bara af því að hún syndir svo vel, hún er líka svo flott í sundbol.

Varaformaður Sundráðs Baggalútíu, stjórnarmaður Ungmennasambands Baggalútíu, ritari Ungmennafélagsins Andspyrnunnar og 1. varamaður á lista Bændaflokksins í Hreppsnefnd Ýsufjarðar
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 14/3/08 13:47

Sundlaugur Vatne er kjarnaskáld, sem vill hafa hlutina á hreinu og er sannkallaður öðlingur. Hann hefur kímnigáfu sem jafnast varla á við nokkurn mann, ef marka má félagsritin hans. Bókaútgefendur bíða í hrönnum eftir að fá að prenta félagsritin á pappír. Sundlaugur gerir sér að sjálfsögðu grein fyrir gildi hreyfingar og líkamsræktar, og þar er sundið fremst í flokki sem er að sjálfsögðu fyrsta flokks íþrótt og fer vel með líkamann.

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jóakim Aðalönd 15/3/08 02:56

Hvurslax er einver sá gáfaðasti Gestapói sem ég veit. Hann kann að spila á orgel og er vel fróður um ritningarnar, enda prestur á Kálfafellsstað í Suðursveit. Hann á Voxcord-harmonikku sem hann keypti af Steina spil fyrir 3 árum. Hann á líka eggjabikar sem státar af einum flestum verðlaunum á skeifukastkeppni Texas árið 1983. Enginn hefur séð Oríon í betra ljósi en hvurslax...

Seztur í helgan stein...
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 15/3/08 08:49

Jóakim aðalönd getur allt. Hann getur að vísu ekki ort heila vísu, (að eigin áliti) en er búinn að setja svo margar línur í fullyrðingamótið og ljóðlínuna að það vegur það algerlega upp. Hann passar vel upp á sitt, fægir hattinn sinn reglulega og gætir þess vel að ekki slæðist appelsínur með gullpeningunum sem streyma til hans á þann hátt sem enginn skilur. Hann er afar vel að sér í fræðum Tinna og Simpsons, og er eðalkvikindi inn að beini.

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
LOKAÐ
        1, 2, 3 ... , 15, 16, 17  
» Gestapó   » Sögur, gátur, leikir og dægradvöl   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: