þeir troða sér einhvurnveginn í sjónvarpið
Er það ekki þannig að stigahæsta tapliðið úr útvarpinu kemst áfram ? Var alla vega alltaf þannig... Og þar sem þetta var mjög hörð keppni eru allar líkur á að það verði MR. Þannig að líklega erum við ekki alveg laus við þá...
Nei, það var þannig að stigahæsta taplið úr 1. umferð fékk að koma með í 2. umferð, því það vantaði upp á að hafa slétta tölu í 2. umferð. En það eru 16 lið í 2. umferð, bara 8 komast áfram. Ekkert stigahæsta taplið neitt.
Hlær glaðhlakkalega
Ó, Lærði skóli, þú mikla menntasetur! Hvar er þín fornaldarfrægð?
Flissar
Hlær glaðhlakkalega
Ó, Lærði skóli, þú mikla menntasetur! Hvar er þín fornaldarfrægð?
Flissar
Frelsið og manndáðin best?
kurrar af niðurbældum hlátri
Skítt með MR - Laugar rúla! Blæs þingeysku lofti á plebbin
Er að hugsa um að syngja Oleee-ole-ole-oleeee, en hættir við það
Skítt með MR - Laugar rúla! Blæs þingeysku lofti á plebbin
Já þessir Flensborgarar geta sosum ekkert... Felur sig fyrir hinum Hafnfirðingunum
Áfram Framhaldsskólinn á Laugum! Mínir menn!
Starir á Z. Natan
Er það??? ertu gamall Lauganemi?? Ég líka!
Hoppar hæð sína og dansar í hringi
leggst niður og fer að gráta
Já einmitt, var að ná í og hlusta á "Gettu betur" keppni kvöldsins og þetta er mjög sögulegt afhroð sem MR liðið geldur og er það vel. Annars kom Laugaliðið mjög á óvart og spái þeim a.m.k. í 4 liða úrslit.
Ég minni jafnframt á að aldrei þessu vant er hægt að hlýða á allar forkeppnirnar inn á www.ruv.is, en vanalegast er ekki hægt að ná í dagskrá Rásar 2 þar.
Starir á Z. Natan
Er það??? ertu gamall Lauganemi?? Ég líka!
Hoppar hæð sína og dansar í hringi
Brosir í kampinn
Hef nú reyndar aldrei verið nemandi þar - en held með þeim svona uppá frændskapinn. Seg´ekkimeir, seg´ekkimeir...
Ó... nú jæja þá... frændsemin kemur þér samt í góðu bækurnar hjá mér!!
Áfram Borgó!! HÚHH HÚHH HÚHH!
Ó... nú jæja þá... frændsemin kemur þér samt í góðu bækurnar hjá mér!!
Himinlifandi
Mikið er ég ánægður með tvenn óvænt úrslit kvöldsins. Þetta er besta útvarpsefnið fyrir strætókalla! Það má eiginlega segja að maður sé með fróðleiks linguaphone í gangi. En samt var nú eitt og annað rangt hjá Stebba Páls í þetta sinnið... Ég frétti að frakklandsforsetaspurningarnar væru eitthvað á skjön við raunveruleikann. Svo féll hann í mjög djúpa gryfju með því að spyrja um þátt Gests Einars Jónassonar sem er á laugardögum. Þátturinn hét í eina tíð „Með grátt í vöngum“ og hádegisþátturinn hans hét „Hvítir Mávar“ en fyrir nokkru breyttist þetta og hann fór að sjá um þáttinn „Einn og hálfur“ á morgnanna og þá sá hann sér leik á borði og breytti nafni laugardagsþáttarins í „Hvítir vangar“. En nú í kringum áramótin var ég að hlusta á téðan þátt (fyrir slysni reyndar) og þar sagði Gestur að hér eftir héti þátturinn sínu gamla nafni, „Með grátt í vöngum“. Þetta man ég því ég hló óskaplega mikið innra með mér þegar ég fór að velta fyrir mér hvort það ætti ekki frekar að vera „Með litaðan koll“. Þannig var það börnin góð.
Sem gömul MR vofa lýsi ég ánægju minni yfir því að MR skuli vera fallið úr keppni. Það og nýbannfært árshátíðarlag lýsa afturför þeirri sem orðið hefur innan þeirrar menntastofnunar síðan ég hvarf þaðan og ljómi minn barst ei lengur um ganga og sali.