Jæja, góðir hálsar, þá er komið innlegg númer 5000 hjá mér.
Nújæja, komst upp um kauða. Viltu pillast til að fara að vaska upp, það sést ekki í eldhúsið! Fer og leitar að eldhúsinu. Mikill skarkali heyrist, svo brothljóð og öskur. Kemur aftur inn á þráðinn hoppandi á öðrum fæti Hvur fjárinn! Er virkilega til svona mikið leirtau í heiminum? Og þarf það allt að vera skítugt og staðsett í eldhúsinu mínu?
Róast og óskar Ívari til hamingju með áfangann. Það er nú ekki á hverjum degi sem maður verður 5000 innleggja gamall En reyndu nú að vaska eins og eitt glas á milli innleggja. Reiknar út fjölda uppvaskaðra glasa ef þetta gengur eftir og ljómar upp
Til hamingju Ívar! Kemur mér þó ekkert sérlega á óvart jafn kjaftfor sem þú ert.
Hálffúll með að Ívar hafi skotist framúr á lista Heimvarnarliðsins
Iss! Ekki ætla ég að segja neinum þegar ég næ þessu asnalega 5000asta innleggi. Magn getur aldrei staðið jafnfætis gæðum.
Leggst skælandi til hvílu og þerrar tárin í sængurhornið og snýr sér að veggnum
Þú ert sjúkur, Ívar!
Veltir fyrir sér hvort þeir gestir er sent hafa inn talsvert meira en 5000 innlegg séu þá enn meira sjúkir en Ívar
Hér er síðan ný-últrakóbaltsduft er dugar í drykki allra gesta hér og miklu meira en það.
Dreifir ný-últrakóbaltsdufti í drykki þeirra er vilja. Bölvar þeim ókosti þess að stundum er það aðeins of fíngert þannig að fagurblátt 'ryk' sest á nálæga hluti ef hreyfing er á loftinu. Veltir fyrir sér mögulegum lausnum á þessu vandamáli og er því mjög utan við sig. Sýpur á fagurbláum drykk
Skál !
Ég hélt að það væri bara Rohypnol sem gerði drykkina fagurbláa.
Ertu að reyna að eitra fyrir okkur - Helvískur?
Til hamingju Ívar! Kemur mér þó ekkert sérlega á óvart jafn kjaftfor sem þú ert.
Þakka þér Vímus... En andskotakornið, ég er ekkert kjaftfor! Helvítis lygi!
Til hamingju með þennan áfanga, megirðu leggja inn mörg í viðbót. Í tilefni dagsins og þess að með þessu innleggi hefi ég fyllt 200 innlegg sjálfur held ég það sé við hæfi að draga fram 21 árs Chivasinn. Gjörið svo vel. Veitir viðstöddum vel. Síðan nálgast innleggjafjöldi á Gestapó óðfluga 200.000, svo mörg tímamót eru væntanleg um þessar mundir.
Ég ætla samt að taka það fram að fyrr frýs í helvíti en að ég fórni tossanafnbótinni.
Það er ánægjulegt að vera nálægt slíkum tímamótum.
snöggt um skárra en helv. fimmhundruðkallinn..