Jæja, góðir hálsar, þá er komið innlegg númer 5000 hjá mér. Blóð og kransæðastíflur vinsamlega afþakkaðar en þeim sem vilja samgleðjast er bent á að það er tilboð á Blút á kaffi Blút. Svo má koma hingað og gleðjast.
Kall greyið, má þá ekki bjóða þér smá Ákavíti í sárabætur...
jútakk, Skál!
Þú ert sjúkur, Ívar!
Skál fyrir því!
Já, takk sömuleiðis Þarfi... menn þurfa að vera sjúkir víst til að fá inngöngu á Gestapó...læðir út úr sér smá hlátri sem breytist í geðveikislegan hrossahlátur
Svo má koma hingað og gleðjast.
Gleðst Til hamingju með áfangann Sívertsen.
Til hamingju með áfangann ! Megi þau verða minnst fimmþúsund í viðbót!
Er svo ekkert að drekka hérna? Á að vera að læra svo að ég sleppi vítinu og lútnum en mundi alveg þiggja eina dæet kók, takk. Þessa af gömlu gerðini - hin er hálfgert bjakk. TAKK.
Ég hef ekki prófað þetta lætkók... hef ekki þorað því. Þess vegna drekk ég bara ekta. Er þetta lætkók eitthvað í líkingu við ektakókið?
Já það er víst mjög líkt upprunalega kókinu.
Málið er bara að mér finnst gamla dæet kókið betra en venjulegt kók...ef þér finnst það ekki skaltu slá til og prófa þetta nýja !
vá! til hamingju, held ég hugsi
Þú ert sjúkur, Ívar!
Veltir fyrir sér hvort þeir gestir er sent hafa inn talsvert meira en 5000 innlegg séu þá enn meira sjúkir en Ívar
Hér er síðan ný-últrakóbaltsduft er dugar í drykki allra gesta hér og miklu meira en það.
Dreifir ný-últrakóbaltsdufti í drykki þeirra er vilja. Bölvar þeim ókosti þess að stundum er það aðeins of fíngert þannig að fagurblátt 'ryk' sest á nálæga hluti ef hreyfing er á loftinu. Veltir fyrir sér mögulegum lausnum á þessu vandamáli og er því mjög utan við sig. Sýpur á fagurbláum drykk
Skál !
Skál!
reynir að dusta bláa litinn af hattinum og skálar við ívar
Velkominn í hópinn kall
Skál Ívar, elsku karlinn!!
Vonandi stígur þetta þér ekki til höfuðs....
Herra Ívar Sívertsen þér eruð vel að þessum áfanga kominn, erfitt er að ímynda sér Baggalút án yðar. Af atorku og örlæti hafið þér látið ljós yðar skína hér víða um þræði.
Þakka yður fyrir það, og til hamingju með þennan áfanga.