Engin kvæði ekki neitt
allir sofa núna
gaman væri varla neitt
vesen er með kúna
geltir og stekkur á nef sér
Engin kvæði, ekki neitt
allir sofa núna
þar sem Kvasis blóð var þeytt
þræðir netsins fúna
Engin kvæði ekki neitt
allir sofa núna
Ó hvað ég er orðin sveitt
eftir rimmu snúna?
Engin kvæði ekki neitt
allir sofa núna.
Ég vild'ég hefði heldur deytt
Helg'en ekki Húna.
öllu gátuð óðar breytt
eyddist lognið dúna
naskir tómið nýttuð greitt
nettir botnar múna