— GESTAPÓ —
Kommúnistaflokkur Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3, ... 74, 75, 76  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 13/1/05 19:07

‹Drekkur Vodka úr skál›Þú gætir verið talsmaður flokksins!

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:10

Í krafti embættis þess er mér er veitt, veiti ég hérmeð Kuggz stöðu mannauðstæknis.
Megi starf þitt í þágu fólksins vera göfult og verða öllum til góðs.
Velkominn í flokkinn! ‹Klappar Kuggz kumpánlega á bakið›

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 13/1/05 19:21

Skál.Á ekki alltaf að vera sovétruður litur í skrifum manns

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kuggz 13/1/05 19:22

‹Leggur frá sér rifið viskustykki og bensínfyllta vodkaflösku, salútar flokksbræðrum sínum›

Það verður mér sönn ánægja að þiggja þetta tækifæri til að þjóna flokki vorum. Megi blý vort streyma sem Volga á góðum degi í hnakka óvina oss og færa oss réttlæti það er oss hefur verið neitað um svo árum skiptir.

‹Hellir síðustu vodkadreitlunum í kaffibolla, loftskálar við bauv.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:23

Jú mikið rétt bauv!
Þú átt hrós skilið fyrir að uppgötva þennan sannleik!
Þú ert uppáhaldsgæludýrið mitt!

‹Knúsar bauv þéttingsfast›

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 13/1/05 19:24

Kommúnisminn er liðinn undir lok og þessi flokkur mun aldrei verða annað en steinbarn í maga Afturhaldskommatittsisns. Og þið ættuð að skammast ykkar fyrir að vera að draga óþroskaðan ungling eins og Bauv í þennan flokk með því að hella í hann vodka.
Þá er nú Jafnaðarmannaflokkur Ívars skárri kostur.
‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:25

‹Brosir vandræðalega› Þú veist samt að þetta er friðarsinnaður flokkur?

‹Lætur hinn heimalagaða koktel Kuggz hverfa›

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 13/1/05 19:25

Þarf ekki að fara ð gera stefnu?

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:28

Herbjörn!

Ehh.....ég get ekki orða bundist.....eða ég meina, ég veit varla hvað skal segja.
Markmið flokksins eru friður og jöfnuður, og teljum við ekki göfugra markmið til í þessum heimi.
Hvað bauv varðar, þá er hann sjálfráður einstaklingur sem getur tekir ákvarðanir um sitt eigið líf sjálfur. Markmið okkar er ekki bein forræðishyggja. Við leggjum áherslu á upplýsta umræðu og virðingu fyrir mannverunni.
bauv er góður drengur, og ég efast ekki um að það sért þú líka, líkt og allir hinir sem villst hafa af leið.

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
bauv 13/1/05 19:29

Þvílík snilld.‹Ljómar upp›

Hvað, hver, hvur
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 13/1/05 19:31

Kommúnistapakk!

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:31

‹Strýkur bauv móðurlega um kollinn›
‹Ljómar upp›

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:32

Herbjörn Hafralóns mælti:

Kommúnistapakk!

Er það s.s. rétt skilið hjá mér að þú sért ekki að leitast eftir embætti á vegum flokksins?

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Kuggz 13/1/05 19:34

‹Horfir föðurlega á Ísis›

Stundum Ísis mín, er best að sitja hjá og láta mannauðstæknana um sitt starf. Ég sé að óvinir flokksins eru strax farnir að láta á sér kræla.

‹Dregur upp framhlaðninginn og röltir í humátt eftir Herbirni flautandi lag eftir óþekktan höfund›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 13/1/05 19:34

Fyrr myndi ég gerast múslimi en að láta bendla mig við kommúnistaflokkinn.
‹Blótar herfilega og rífur hár sitt›

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:35

Herbjörn Hafralóns mælti:

Kommúnistapakk!

Eða var þetta meint sem hrós, ef svo er; velkominn í hópinn!

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ísis 13/1/05 19:40

Ég leyfi þér þá að sjá um þetta mál, Kuggz.
Á meðan ætla ég að halda til vesturs að heimsækja hann Fídel, félaga minn. Hann kann ráð við flestum vandamál, enda maður mikillar visku og hugrekkis.

Æðsta gyðja Baggalúts - Áróðursmeistari Kommúnistaflokks Baggalúts
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Afturhaldskommatittur 13/1/05 19:57

‹Salútar Kuggz›

Vertu velkominn, félagi Kuggz! Ég sé að þú ert mætur maður, og því treysti ég þér fullkomlega til að gegna hinni mikilvægu stöðu mannauðstæknis. Uppþot Herbjarnar hefur sýnt að þín er full þörf.

‹Færir Kuggz svartan gljákenndan embættisgalla›

Aðalritari Kommúnistaflokks Baggalútíu • Öreigar allra landa sameinist! - Ísland úr NATO fyrst herinn fór burt! - Cuba si, Yankee no! - Fram þjáðir menn í þúsund löndum! - Hasta la Victoria siempre! - Og lifi byltingin, ávallt!
        1, 2, 3, ... 74, 75, 76  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: