Tja, get ég ekki verið Minister fuer Propaganda?
Staða áróðursmeistara hefur þegar verið skipuð, en þar sem Ísis hefur ekki látið sjá sig í háa herrans tíð, þá held ég að æskilegt væri að lækka hana í tign, og setja þig í embættið í stað hennar.
Velkominn, félagi áróðursmeistari Bölverkur!
Ég þakka fyrir embættisveitinguna og mun strax fara að vinna að hreinsunum í flokknum.
Það líst mér reyndar ágætlega á. Þú gætir byrjað á að hreina hinn kommúnistann í floknum. Hrektu afturhaldskommatitt úr flokknum og þín bíða gull og grænir skógar á leynilegum reikningum í Sviss. Þú getur síðan deilt auðnum með alþýðunni ef þig langar til.
Hvur þremillinn! Ég læt ekki sjá mig í nokkurn tíma, og allt flokksstarf leggst niður í kjölfarið! Ég veit að ég er burðarstólpi og stofnandi flokksins, en fyrr má nú vera persónudýrkunin!
Legg ég því til að haldinn verði fundur hið snarasta. Allir meðlimir flokksins eru vinsamlegast beðnir að mæta um leið og þeir birtast hér.
Starir þegjandi út í loftið
Þú ert nú bara ekkert annað en afturhaldskommatittur!
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er Kókakóla mætt á fund hjá Kommúnistaflokknum?
Öðruvísi mér áður brá!
Hvað ætlar Kókakóla að gera hér? Grafa undan sannfæringu okkar með lævísisilegum fíknarbrögðum?
Eða er það kannski hingað komið til að svíkja lit ... eða kannski réttara sagt að halda lit, þar sem það er nú einu sinni rautt, þrátt fyrir alla aðra galla þess.
Árans ekkisens liðleskjur og lýðskrumarar!
God bevare Dronningen og Denmark!
Ertu konungssinni í þokkabót þýskara ...
Minnist þess í æsingnum að Marx var jú þýskur. Róast eilítið
Konungsdýrkun er auðvitað auðvirðilegasta form stjórnaróhátta sem hægt er að hugsa sér. Þvílíkur og annars eins hundsháttur og undirlægja!
Laumar hljóðnemum út um allt og selur CIA upplýsingarnar
Laumar hljóðnemum út um allt og selur CIA upplýsingarnar
Bendir á Ferrari og horfir á hann ásökunaraugum Föðurlandssvikari!
Spilar Mahler á hæsta styrk í öflugum hljómgræjum til að yfirgnæfa allt tal á upptökunum
Talar
HA? HVAÐ SAGÐIRÐU?