Sökum fjölda áskorana hefi ég ákveðið að stofna hér í Baggalútíu afturhaldskommatittaflokk, til þess að vinna að uppgangi og vegsemd byltingarinnar sem svo sannarlega er nauðsynleg.
Fyrsta embættisverk mitt er að skipa sjálfan mig sem aðalritara.
Næsta embættisverk mitt er að bjóða fólk velkomið til að sækja um inngöngu. Þegar hæfilega margir meðlimir eru komnir í flokkinn munum við kjósa í embætti á lýðræðislegan hátt.
Embættislisti:
Aðalritari: Afturhaldskommatittur
Áróðursmeistari: Bölverkur
Áróðurstæknir: Ísis
Mannauðstæknir: Kuggz
Brjálaði vísindamaðurinn: Gvendur skrýtni
Barþjónn: Tina St.Sebastian
Agameistari: Skoffín
Læknir: Dr. Zoidberg
Fiktari: Glúmur
Dreifingaraðili: Coca Cola
Yfirkokkur: Ormlaug
Vitleysingur: Er ég vitleysingur?
Yfirhákon: Meiri Hákon
Sæðistæknir: spermus
Verndari: Bismark XI
--------------------------------------------------
Svarti listinn - óvinir flokksins:
Mikill Hákon
Nykur
Vladimir Fuckov
Hakuchi
Júlía
Smábaggi
Þarfagreinir
Haraldur Austmann
Jóakim Aðalönd
Herbjörn Hafralóns
Heiðglyrnir
Dillinger
Stöður gjaldkera, þarfagreinis, gæludýrs og njósnara eru lausar, sökum fáheyrðra og löðurmannlegra svika.
Ég lýsi hérmeð yfir fullum stuðningi við stofnun þessa flokks og mun reyna eftir fremstu getu að sinna skyldum mínum, með velferð flokkmeðlima og málstaðarins að leiðarljósi.
Einnig tek ég auðfúslega við starfi áróðursmeistara flokksins.
Skjót viðbrögð. Þetta líst mér vel á. Ég sé glitta í betri tíð með samvinnu í haga. Með tveimur meðlimum erum við hæfilega mörg, og ég kýs þig til embættis áróðursmeistara.
Samþykkt hefur því verið einhljóða að veita Ísisi stöðu áróðursmeistara, með tveimur atkvæðum gegn engu.
"... I refute the accusation of having plotted against the life of Vladimir Ilyich, but my counter-revolutionary confederates, and I at their head, endeavoured to murder Lenin's cause, which is being carried on with such tremendous success by Stalin. ..." Nikolai Bukharin í yfirlýsingu til yfirréttar Sovétíkjanna 12. mars. 1938
Er þetta beiðni um inngöngu, Voff?
Ef ekki, þá líst mér nú illa á þig. Vertu góður hvutti og leyfðu okkur að njóta vafans. Sjáðu bara hvað við erum góðleg! Svo erum við líka miklir barnavinir.
Ég sé ekkert að inngöngu þinni í flokkinn bauv minn, er eitthvað embætti sem þú hefur sérstaklega áhuga á?
Ég er með hugmynd!
Glottir geðveikislega
Hvað með gæludýr flokksins, þú ert svo mikið krútt!
Klípur í kinnarnar á bauv og hristir haus hans
Ég er sáttur með það.Gefur frá sér vellíðunarstunu(þaf samt að bíða eftir að afturhaldkommatitur staðfesti eða vilji annað)Ljómar upp
Já! Sannarlega góð hugmynd. Vertu velkominn í flokkinn, bauv.
Gefur öllum svarta loðhúfu með rauðum hamri og sigð á
Skælbrosir og gefur bauv líka fána til að veifa
Farðu nú og berðu út boðskapinn, bauv minn góður!
Fer í ráðhús Reykjavíkur og gefur öllum loðhúfur með sigð og hamari áStekkur hæð sína
Tekur við húfunni af mikilli lotningu
Kvelst óheyrilega mikið við að láta flúra merki flokksins á vinstri ökkla
Þetta kalla ég þrautsegju og sannan stuðning við málstaðinn!
Klappar framtaki Ísisar lof í lófa
Réttir úr sér
Ég sæki hér með formlega um inngöngu í flokkinn og það verkefni að verða mannauðstæknir. Er það skilyrði fyrir inngöngu minni að mér verði úthlutað þeim titli og verksviði er spanar útfyrir spurningar múgsins um mannréttindi og tilvistarrétt flokksmanna.
Dustar rykið af svörtu berettunni með rauðri stjörnu og salútar félaga Afturhaldskommatitti