Og skál fyrir því að Limbri fái að leika sér með danskan Laser!
Já skál fyrir Limbra! það verður gott að þekkja hann seinna, þegar hann er orðinn frægur
Annars ætla ég núna að fá mér smá bjór til að skola þessum pönnsum niður. Carl's bjór er svoooo góður. Ég mæli með að þið heimtið að fá allar mögulegar tegundir af honum innfluttar til Íslands.
-
Já, það er ekki upp á marga fiska það sem Carl bíður okkur upp á hérna megin...
Og skál fyrir flatri jörð, sléttum fötum og hreinni trú !
Og sleiktu hári! Kinkar kumpánlega kolli til Vlads og Limbra.
Já skál fyrir því... farinn að sjá margfalt og ritstjórninni... hikk
Nei andsk... Ojæja. Slær saman hælunum Megi hún aldrei þrífast!
hoho... jæja piltar endilega kláriði pönnsurnar, þarf að skreppa út í ríki...
tekur ofan hattinn og hverfur
Helvíti fínn kall hann Skabbi. Helvíti fínn.
Sýgur upp í nefið og nælir sér í pönnsu með óþarflega miklum rjóma.
Stelur einni kaldri með sykri
Hvur fjárinn, þetta er bara eins og amma gamla í sveitinni gerði alltaf
Brosir Sólheimabrosi
Rennur á lyktina en sér að allar pönnsur eru búnar
Helvítis græðgi alltaf hreint
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Það má nú alltaf hræra í fleiri pönnsur...
hrærir saman hveiti, egg, mjólk, vanilludropum, salti og brætt smjör, fírar pönnuna í botn og byrjar að pönnsast
Sendu mér bréf-rjúpu þegar pönnsustaflinn er orðinn nógu stór til að klífa hann (og það er lífshættulegt að falla niður).
-
Ætlar einhver að sykra og rúlla upp pönnsunum, muna strá sykrinum létt yfir alla pönnsuna, brjóta síðan einn helminginn inn að miðju og rúlla svo... staflinn þarna meginn geymum við síðan fyrir rjómapönnsurnar, leyfum þeim að kólna aðeins...
Ákavítið er svo fyrir alla...
þó ég hafi ekkert á móti pönnukökum eða ákavíti, langar mig til að bæta aðeins við þessar pælingar um að jörðin sé flöt.
Ég hef sannanir fyrir því að hún er flöt, en aðeins í fimmtu víddinni! hún er nefninlega ekki kúla nema í fjórum víddum, en þegar við færum okkur yfir í fimmtuvíddina er augljóst að jörðin er flöt. Við bara sjáum þetta ekki því við kunnum bara að ferðast í fjórum víddum.
jörðin er lína í einni vídd, hringur í tveim víddum, kúla í þrem víddum, ennþá kúla í fjórum víddum (allavegana hér), en svo er hún flöt eins og pönnukaka í fimmtu víddinni!
þetta er líkt og ef maur mundi ferðast um á stórum bolta, mundi hann halda að boltinn væri flatur. eða... já... hmm... eina sem maurinn þarf að gera er að teikna þríhyrning á flötinn og komast að því að hornasumma hans er ekki 180!! að sama skapi getum við teiknað kúlu í fjórum víddum og komist að því að rúmmálið er ekki 4/3*radius^3 *pi*sek !!! þetta er svo einfalt!!