Mér bara datt þetta svona í hug? Er það heilhveitibauv eða þriggja konar bauv?
Mér bara datt þetta svona í hug? Er það heilhveitibauv eða þriggja konar bauv?
Þriggja konar bauv?
Átti þetta að vera þriggja korna bauv eða þriggja kvenna bauv?
Er bauv ekki of ungur fyrir svoleiðis?
Ykkur er óheimilt að nota bauv© eða afurðir byggðar á honum. Slíkur réttur er í höndum Hakuchi Enterprises og hefur verið síðan sala á bauvböngsum® sló öll met fyrir jólin.
Sendir her af mannætulögfræðingum til að klína slímmálsóknum á þá seku.
Namm mannætulögfræðingar Sleikir, út um
Bauv piparkökurnar voru afturkallaðar út af einhverjum fáránlegum reglum um að ekki megi vera geislavirkur úrgangur í bakkelsi.
Fjárans skrifræði.
Bauv handa hungruðum heimi!
Muniði þegar jesús mettaði 5000 manns með 5 fiskum og 3 bauvum?
Það er með þetta eins og annað talnaefni í Biblíunni, það er bara ekkert að marka tölur í Biblíunni. 40 dagar og 40 nætur mun bara þýða "mjög langur tími". 5 fiskar og 2 brauð (eða var það bauv) þýðir því bara "hellings slatti, en þó ekki yfirgengileg glás". Og svo ber að taka fram að fiskur og fiskur er ekki sami hluturinn, sbr. annars vegar steypireyði og hins vegar loðnu. Og brauð og brauð er ekki þð sama. Brauðin gætu hafa verið risastór. Og svo spyr ég hvort það sé nokkuð að marka talninguna á fólkin sem var þarna. ef þeir nota orðin 40 dagar og 40 nætur yfir langan tíma, hvernig geta þeir þá talið upp í 5000 (eða var það 3000). Kannski voru þetta alls ekki svo margir. Kannski voru þetta bara Jesú og lærisveinarnir. Það er ekkert voðalegt að fæða 13 manns með 5 fiskum og 2 brauðum. Það er bara ósköp eðlileg máltíð.
Já,og gætu lærissveinarnir ekki hafa verið fjörtíu þúsund í stað 12 ef út í það er farið?
Og svo ber að taka fram að fiskur og fiskur er ekki sami hluturinn, sbr. annars vegar steypireyði og hins vegar loðnu.
Tja, fiskur og steypireyður voru nú ekki sami hluturinn síðast þegar ég gáði þar sem steypireyður er spendýr... en hvað með það, maður lifir víst ekki á bauvi einu saman.
Er þessi málsókn ekki á hálfgerðum bauvfótum.
Ég hefði bara pantað pizzur.
Ætli kallinn hafi ekki einmitt gert það, eina með ansjósum og bauv.
Gæfa fylgir góðum bauv.