Í mogganum í dag er sagt frá fyrirætlun um geimferðastöð á Kröflu-svæðinu. Í því tilefni samdi ég þrjár litlar vísur.
Fer um geiminn flýgur hátt,
fólk gengið af göflunum.
Grallaragengið gerir uppdrátt,
að geimferðastöð í Kröflunum.
Nú er þursa hefnd við þjóð´na efnd.
Þar er margur spakur.
Kannar geiminn Kröflunefnd,
kannski er einhver rakur.
Gufuaflið reynist til geimferða gott.
Það gæti leyst ýmsan vanda.
Situr á rakettu, syngur: Hott hott,
sjálfur geimöreigi allra landa.
Allir mega koma með betri botna eða fyrripart.
Heimskir eru heimsins flestir
hendast aðrir útí geim
Svo er að botna bara..
p.s. Heimskur er hér auðvitað í gömlu góðu merkingunni...