Fyrst Enter sér sér eigi fært að leggja fram gátu viljum vér spyrja að eftirfarandi og biðjum um nákvæmt svar: Hverjir voru í stríði við hverja er þeir félagar Ástríkur og Steinríkur sóttu steinaolíu til Mið-Austurlanda?
Eru allir úti að aka?
Eigi var það svo einfalt.
Það voru allir að berjast við alla. Man eftir Medum og Hittitum. Það geta kannski einhverjir aðrir fyllt í eyðurnar.
Jú, Medar og Hittítar voru þarna, en hverjir fleiri, og hverjir voru í stríði við hverja.
Getur enginn neitt hér?
Um næstu helgi mun svarið verða gefið upp og þá má hver sem er hirða réttinn.
Tina St. Sebastian hefði kannske getað svarað þessu, enda komu þessar upplýsingar fram í þeirri einu Ástríks-bókinni er hún á, Hrakningasaga Ástríks.
Stríðið stóð svo:
Súmerar börðust við Arkadíubúa, er voru í stríði við Hittíta, en þeim var eitthvað í nöp við Assýríumenn er aftur voru í stríði við Meda. Ekki kom fram við hverja Medar vildu berjast, en hægt er að gera ráð fyrir því að það hafi verið Súmerar. Þar með hefur hringurinn lokast.
Hver vill skella fram næstu þraut?
Þar eð engum hefir dottið neitt í hug síðustu fimm mánuðina skellum vér fram einni meðalþungri þraut. Hvar var falsspámaðurinn alinn upp?
Í Suður-Evrópu
Jú, í Evrópu var það en vér viljum fá nákvæmari staðfestingu. Menn verða að hafa lesið bókina til að vita þetta.
Enn er spurt, hvaðan falsspámaðurinn kom.
Er þetta þrautseigi þráðurinn?