Wonko: já, þetta eru White Stripes... en hvað heitir lagið, það er stóra spurningin.
Hvernig stendur á að það sé stóra spurningin í leik sem heitir "Glefsur úr dægurlagatextum, spurt er um flytjendur" ?
-
Obbosí Roðnar
Fannst bara endilega eins og það þyrfti að koma með lagaheitið líka. Þetta var annars Hotel Yorba. En já, þá á Wonko réttinn, með meiru.
Eitthvað íslenskt
Kemur álfur út úr hól, Kemur álfur út ur hól
Ef ég byggi á hólinn útidyr.
Kemur álfur út úr hól
Er þetta af einhverri krakkaplötu eða eru þetta kannski Húfa eða Döðlur eða Kartöflumýsnar eða eitthvað þannig?
Nei, þetta er ekki krakkaplata. En þó var einn meðlimur þessarar hljómsveitar í Húfunni.
Nei, ekkert í llíkingu við Sólstrandargæjana.
Já, Hvanndalsbræður var það!
Álftagerðisbræður hvað? Þeir syngja bara "Fullur í fjörunni, marinn og blár!"
Jah, ekki gat ég farið að apa beint upp eftir félaga mínum Z. Natan Ó. Jónatanz... eða hvað ?
-
Meira íslenzkt - vitnað, reyndar ekki í texta, heldur inngangsorð að lagi:
"... innan ... eru starfandi ýmsir klúbbar & félagasamtök, ... s.s. átthagafélag, antisportistaklúbbur, ...."
Ritað eftir minni - er e.t.v. er þetta ekki orðrétt tilvitnun.
XXX Rottweilerhundar
Sönn íslensk sakamál heitir lagið ef mig misminnir ekki.
Þetta er nú reyndar ekki það sem ég hafði í huga... fleiri tillögur?
Tengist þetta eitthvað Agli Ólafs - Kannast svo við þetta - Ég er með þetta gjörsamlega fast í ennisblaðinu
Er þetta ekki eitthvurt stuðmannalagið?
Gæti hafa komið fyrir í myndinni með allt á hreinu Starir þegjandi út í loftið