Ég er víst Enfj hvað sem það þýðir.
Uppi, þú þarft ekkert að vera að kalla þig pakk.
en ertu búin að lesa lýsinguna á þessu ESFP liði?
Alveg óþolandi mundi ég segja.
Þetta er líka algjör andstæða við mig. Það hlýtur að hafa sitt að segja.
Ég er víst Enfj hvað sem það þýðir.
Það þýðir að þú er kjeeeeeeelling. Glottir eins og fífl
Nei annars - þetta virkar sem fínasta týpa af lýsingum að dæma. Man líka ekki eftir að hafa rekist á hana áður. Þú ert spes.
Gandalfur í Hringadróttinssögu er sagður vera intj erkitýpa. Hér er intj kisa:
Og hér er önnur:
Ætla svo að finna fleiri kisur sem passa við MB týpur.
Ef oss leyfist að sletta agnarögn, þar eð vér höfum innistœðu fyrir því, þá erum vér, samkvæmt þessu, upp á enska tungu, Scientific duty fulfiller.
Í sama anda erum vjer þá Scientific thinker eða Thinking scientist og má það að miklu leyti til sanns vegar færa, a.m.k. hið fyrrnefnda. Annars passaði sumt í þessum INTJ/INTP lýsingum ekki alveg 100% en annað passaði svo nákvæmlega og var svo kunnuglegt að það var hálf fyndið að lesa það. Erum vjer að velta fyrir oss hvort jafnvel skuli leggjai í að opinbera þau ósköp Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið.
ENFP hér...
Ég tók þetta aftur núna... og reynist þá vera ESFP
ENFP hér...
Ég tók þetta aftur núna... og reynist þá vera ESFP
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þjer hafið breyst, þetta er engin mynd ! Minnist þess að Ívar leit allt öðruvísi út fyrir nokkrum árum
Ég ætla ekki að gefa upp hvað ég er. Það er milli mín og sléttunnar. Það er möguleiki að ég segi Blesa það samt.
Það er samt alveg augljóst hvað ég er þannig að ég segi bara öllum frá því. Ég er auðvitað **** Ljómar upp
Tonto er EISJ (ekta indjáni sem jóðlar).
ENFP hér...
Ég tók þetta aftur núna... og reynist þá vera ESFP
Mig minnir að einhvers staðar hafi staðið að ESFP væri alltaf hrókur alls fagnaðar í samkvæmum og miklir dansarar. ljómar upp
Hér er ESFP kisa:
Mig grunar að Jesper sé líka ESFP.
ENFP hér...
Ég tók þetta aftur núna... og reynist þá vera ESFP
Mig minnir að einhvers staðar hafi staðið að ESFP væri alltaf hrókur alls fagnaðar í samkvæmum og miklir dansarar.
A.m.k fyrri hluti þessarar lýsingar virðist passa.
Eftirfarandi tilvitnun í gamalt innlegg um INTP er eitt af því sem vjer vísuðum til að ofan og sem var frekar fyndið að lesa:
Eigi kitlaði þetta hégóma vorn sérstaklega og sumu vorum vér ósammála. En eigi komumst vér þó hjá að brosa er vér sáum þetta í lýsingunni á INTP er vér lásum hana aftur:
One of the tipoffs that a person is an INTP is her obsession with logical correctness
og minntumst þess þá að vér höfðum skrifað þetta ofar í þessum þræði:
„Þetta er þó skárra en stjörnuspeki er Hakuchi nefndi (sem er í reynd nánast hægt að afsanna 'rökfræðilega')...“
Auk INTP er svo ýmislegt úr lýsingunni á INTJ sem er líka kunnuglegt.
Vlad er svo sannarlega ekki sá eini sem stendur á milli INTJ og INTP. Ég þekki persónulega tvo herramenn sem eru einmitt í þerri krísu ef krísu skyldi kalla.
Psssst! Voldemort er INTP, ekki INTJ.
Ég er líka ENFP
Extraverted -11% Intuitive -25% Feeling-12% Perceiving -11%
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
ENFP virðist veita INTJ frekar harða samkeppni ...
Sko, þegar ég tók þetta fyrst var ég á skrítnum stað í lífinu (nýskilin, bjó ein ofl.) og þá var ég ISTJ.
En núna og alltaf síðan þá er ég ESFP, eins og Dula og Uppi Ljómar upp
Enda var nú líka meiri vitleysan að halda að ég væri introvert!
Og ég held að af öllu sem er skrifað um ESFP þá sé þetta það sem ég er hrifnust af:
One of their greatest gifts is their general acceptance of everyone
Sko, þegar ég tók þetta fyrst var ég á skrítnum stað í lífinu (nýskilin, bjó ein ofl.) og þá var ég ISTJ.
En núna og alltaf síðan þá er ég ESFP, eins og Dula og Uppi Ljómar upp
Enda var nú líka meiri vitleysan að halda að ég væri introvert!
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þetta virðist mjög stór breyting. En oss virðist a.m.k. alveg augljóst að E-eitthvað hlýtur að passa betur en I-eitthvað.
ESFP passar nokkuð betur við Nornina en ISTJ.
Þetta þýðir líka að ESFP er einnig orðin frekar algeng týpa hér.
Ívar virðist síðan mögulega vera einhvers konar ESFP/ENFP-blendingur, rétt eins og Vlad virðist vera INTJ/INTP-blendingur, og Fergesji INTJ/ISTJ-blendingur.