Er ég eini INFP-inn, mikið er það nú sárt eins og það er indælt... hehe
INFP-ar eru sjaldgæfir og dýrmætir ... en ég get glatt þig með að ég veit um einn annan slíkan hér á Gestapó sem ég þekki persónulega; veit samt ekki alveg hvort ég hef leyfi til að segja hver það er að svo stöddu ...
Svo þekki ég líka annan INFP sem ekki er á Gestapó, þannig að þetta er bara í góðu lagi. Reyndar hef ég ekki skikkað alveg alla vini og vandamenn til að taka þetta próf (þó svo að það slagi hátt í það), þannig að maður veit ekki almennilega hvaða týpur leynast meðal hinna sem eftir eru.
Ég kem þá hér með út úr skápnum. Vei!skálar í mánadufti við ímynduðu vinina sína
INFJ
You are:
* slightly expressed introvert
* moderately expressed intuitive personality
* slightly expressed feeling personality
* slightly expressed judging personality
Þetta virðist mér fara svolítið eftir gerð prófsins, alla vega í mínu tilfelli. Eða kannski er ég bara á mörkunum milli INTP og INFP.
Já, gott ef ekki.
fær sér sæti milli Vlads annars vegar og Skabba og Skoffíns hins vegar
Þetta er nokkuð merkilegt. Hér er dreifingin niður í flokka hér á Baggalúti (BL) samanborin við Bandaríkin. Fjöldinn hér er að vísu svo lítill að fyrir flesta flokka er þetta eigi marktækt en þó virðist líklegt að hér sé sérlega mikið um INTJ, INTP og INFP 'nörda' sem annars eru frekar sjaldgæfir. Fjöldinn í sumum flokkum er eigi heiltala því sumir Bagglýtingar eru á mörkunum milli tveggja flokka (t.d. Mosa frænka í innlegginu hér fyrir ofan).
Fjöldi BL % US %
INTJ 5,5 32 2,1
INTP 3,5 21 3,3
INFP 2,5 15 4,4
ESFJ 1 6 12,3
ISTJ 1 6 11,6
ESTP 1 6 4,3
ENTP 1 6 3,2
INFJ 1 6 1,5
ISFJ 0,5 3 13,8
ISFP 0 0 8,8
ESTJ 0 0 8,7
ESFP 0 0 8,5
ENFP 0 0 8,1
ISTP 0 0 5,4
ENFJ 0 0 2,4
ENTJ 0 0 1,8
PS Hversvegna í úfnum og ójöfnum órangútanöpum er eigi unnt að fá svona töflur út í Courier í staðinn fyrir að þær komi sem kvæði. Þetta er í ósamræmi við BBCode (sjá þennan þráð: http://www.baggalutur.is/viewtopic.php?t=3735 ).
ENFP hér...
Déskotans tölvan át öll svörin mín. Ég gefst upp á þessari „vísindalegu“ Frances Drake-moggastjörnuspá.
Ég fékk 10! Ljómar upp
Skoðar síðuna betur
INTP...Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Svona svona... þú ert bara einstök... réttir Norninni vasaklút
Enginn annar hérna ISTP?
Ég að minnsta kosti fékk það útStarir þegjandi út í loftið
Er ég eini INFP-inn, mikið er það nú sárt eins og það er indælt... hehe
INFP-ar eru sjaldgæfir og dýrmætir ... en ég get glatt þig með að ég veit um einn annan slíkan hér á Gestapó sem ég þekki persónulega; veit samt ekki alveg hvort ég hef leyfi til að segja hver það er að svo stöddu ...
Svo þekki ég líka annan INFP sem ekki er á Gestapó, þannig að þetta er bara í góðu lagi. Reyndar hef ég ekki skikkað alveg alla vini og vandamenn til að taka þetta próf (þó svo að það slagi hátt í það), þannig að maður veit ekki almennilega hvaða týpur leynast meðal hinna sem eftir eru.
Ég kem þá hér með út úr skápnum. Vei!skálar í mánadufti við ímynduðu vinina sína
Og ég er hinn! Stekkur hæð sína Jei!
Það rata allir á Gestapó fyrr eða síðar. Sérstaklega innhverfingar eins og við. Gefur Bangsímon hunangskrukku
Það rata allir á Gestapó fyrr eða síðar. Sérstaklega innhverfingar eins og við. Gefur Bangsímon hunangskrukku
Hvernig vissuru?! Þetta er uppáhaldið mitt! Ljómar upp Þakka þér kærlega fyrir, vinur minn! Knúsar Þarfagreinir
Tja, ég er nú einu sinni Þarfagreinir. Ljómar upp
Your Type is
INFJ
Introverted 67
Intuitive 38
Feeling 12
Judging 22
Gaman að sjá þennan gamla þráð. Myers Briggs tel ég núna eiginlega enn merkilegra en mér fannst það fyrir rúmum fjórum árum síðan.
Ég er ENFP!
Ég man ekki tölurnar.... Klórar sér í höfðinu
Jahá. Ég er INFJ en J-ið er bara 1% svo ég get líklega alveg eins verið INJP.
Ég man eftir að hafa tekið þetta próf fyrir löngu og pælt mikið í því og man að það var eitthvert atriði þar sem ég var alveg í miðjunni, það hlýtur að hafa verið þetta Jeða P
En INTJ er kallað Ráðgjafinn. Ekki slæmt.