Haraldur Austmann hefur vissulega lög að mæla hér. Ég bendi á ágætan pistil Sverris Jakobssonar um þetta mál sem hann vísar í: http://www.murinn.is/eldra_b.asp?nr=1461&gerd=Frettir&arg=5. Sjálfur þekki ég til vandræða hjóna þar sem erlendri eiginkonu Íslendings var ekki hleypt aftur inn í landið eftir heimsókn með frumburð þeirra til fjölskyldu sinnar, þótt hún væri með atvinnuleyfi og væri ríkisstarfsmaður. Þetta er allt hið allrafurðulegasta mál.
Það er deginum ljósara að Bobby Fisher er mesti skákmaður sögunnar nú þegar þegar hann er að verða að Íslendingi. Fyrir eigum við fallegustu konuna og sterkasta manninn, þegar við höfum svo eignað okkur Bobbý þá er ekki hægt að væna okkur um að vera bara sæt og sterk, sem er eitthvað svo yfirborðskennt. Því þá erum við líka ofsa klár í kollinum! MUHAHAHAHAH! hlær geðveikislega
Ég veit ekki hvort það ætti að kalla froðufellandi gyðingahatur sérvisku.
Gyðingahatur? Er það komið í tísku aftur?
Eins gott að ég henti engu....
Skreppur inn í bílskúr og sækir 6000 lítra af Cyklon B
Setur á sig gasgrímu og bregður fæti fyrir Rauðbjörn
Ef Fischer er boðið til landsins er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt að bjóða Spaski (eða 'y'?) að setjast hér að líka. Án hans hefði Bobby ekki komið hingað. Hann á vísast líka voða bágt, karlskinnið.
Já þetta er hið furðulegasta mál. Hef velt því fyrir mér og reynt að taka til þess afstöðu, en ég hreinlega kemst ekki að neinni niðurstöðu. Sem mér finnst eiginlega öllu furðulegra svona allavega fyrir mitt leyti þar sem ég hef sterkar skoðanir á allt og öllu eins og sönnum Íslending sæmir.
Nú er ég hissa..................
Ég veit ekki hvort það ætti að kalla froðufellandi gyðingahatur sérvisku.
Gyðingahatur? Er það komið í tísku aftur?
Eins gott að ég henti engu....
Skreppur inn í bílskúr og sækir 6000 lítra af Cyklon B
Var það ekki Zyclon?
Vonandi keyptu þeir sér köttinn í sekknum bévítans skrumararnir. Nei ekki þú bróðir.
Það er hins vegar illt að vita til þess að ungur Úkraínu maður var sendur af landi brott sama dag eða deginum áður fyrir þá alvarlegu sök að vera ekki orðinn 24 ára (En eins og allir vita þá er fólk undir 23 ára í gervihjónaböndum og meinar ekkert með því að skiptast á hringum og hjónabandseiðum. Það lagast hins vegar allt við 24 ára afmælisdaginn). Mér skilst að Útlendingastofnin hafi ekki kannað fyrst hvort hann kynni mannganginn eða væri liðtækur í öðrum íþróttagreinum, handbolta, körfubolta, tennis ... margt er hægt að bralla. Þetta er alvarlegt brot á rannsóknarreglu stjórnsýslulaga. En ef til vill hefur Goggi verið of upptekinn við að máta húfuna og laga rendurnar á uniforminu.
Reglur um veitingu dvalarleyfis eru strangar á Íslandi og ég get ekki neitað því að mér hefur fundist á þeim fasistabragur á stundum. Sérstaklega eftir að ég þurfti að gera mér ferð í útlendingaeftirlitið vegna tapaðs vegabréfs eitt sinn og varð vitni að ótrúlegri framkomu starfsfólks þar við þá sem þangað áttu erindi. í ljósi þessa finnst mér fáránlegt að íslensk stjórnvöld skuli bjóða hr. Fischer dvalarleyfi á silfurfati meðan þau veigra sér við að veita barnafólki frá stríðshrjáðum löndum hæli og senda það burt með fyrstu ferð.
En hann verður óneitanlega góður liðsmaður í s.k. Fisher-skák sem hann fann sjálfur upp. Og hver veit nema það verði farið að keppa í henni á næsti Olympíuleikum.
Nei þetta er rangur misskilningur, það á að keppa í Fisher-sundi á næstu ólimpíuleikum hlær að sjálfs síns fyndni
Mér finnst vel til fundið að veita manninum dvalarleyfi hér. Hann er nú einu sinni yfirlýstur og ástríðufullur andstæðingur Kanaauðvaldins. Ísland þarf fleiri slíka menn til þess að sporna gegn sleikjuháttinum gagnvart langri krumlu kapítalismans sem hér teygir sig í öll skúmaskot.
Kannski að svona maður gæti tekið þátt í byltingarundirbúningnum með okkur félögunum. Gaman væri að fá jafn kláran mann í þetta mikilvægasta verkefni Íslandssögunnar.
Ég leyfi mér að efast um að þáttaka illa einhverfs manns með herfileg geðræn vandamál verði til þess að styrkja málstaðinn...þó hann kunni að tefla.
Þó svo að maðurinn sé geðveikari en sjimpans-api á ofskynjunarefnum þá á hann engu að síður skilið að koma til landsins fyrir þá miklu landkynningu sem að hann var hér á sínum tíma.
Svo hefur hann ekkert sér til sakar unnið nema það að ,,móðga´´ Bush.
Starir þegjandi út í loftið
Hefur karlinn nokkurn tíma verið læknisfræðilega greindur geðveikur? og hvaða geðveiki er að hrjá hann? Ég hef öllu meiri áhyggjur af ört vaxandi geðveiki Davíðs Oddssonar. Hún er sögð ættgeng og það lofar ekki góðu.