að Garðar Sverris væri innsti koppur í búri með það að fá sturlaða dammspilarann Bobby 'Skyræta' Fischer til landsins.
Nei andskotinn!
Vilja þeir ekki bara fá fyrrum heimsmeistarann í jójó í bæinn í leiðinni - og konung slönguspilsins?
Fáránleg framtíðarsýn: Bobby Fischer í góðum fílíng á Hlemmi að drekka kaffi úr plastmáli og spjalla við dósasafnara. Vonandi kíkir hann þó í tafl á Grandrokki.
Mér skilst að umræddur skáknörd hafi tekið sig til og búið til nýja tegund af skák, þar sem þessi blessaði manngangur sem flestir telja sig kunna hefur ekkert að segja.
Þó svo að ég kunni nú varla mannganginn, þá hef ég nú heyrt því fleygt að Fischer sé fremsti núlifandi skákmaður í veröldinni og að hann sé einn af tíu bestu sem uppi hafa verið.
Hvernig er það, er ekki hægt að finna upp fjöltefli á einu borði?
Það er spurningin um að fara að kynna sér nýju reglurnar hans Fishers... kallast víst Fisher-Random eða eitthvað svoleiðis...
Ekki Fisher-Price?
Ég væri til í að sjá hann keppa við Baggalútíumeistarann okkar, hann Hlebba. Hann mátar menn í fyrsta leik!
Úff maður. Ég vona að þeir fari ekki að hleypa þessum geðsjúklingi í fjölmiðla og leyfa honum að tjá sig sem 'virtur' heimsmeistari.
Ef hann kemur til landsins, eiga menn í hvítu að bíða eftir honum á vellinum. Setja hann í 'gleðitreyju' og skella honum beint inn á Klepp þar sem hann á heima.
Mér skilst að umræddur skáknörd hafi tekið sig til og búið til nýja tegund af skák, þar sem þessi blessaði manngangur sem flestir telja sig kunna hefur ekkert að segja.
Þær fregnir sem ég hef af Nýskák eru þær að manngangurinn sé sá sami en uppröðun mannanna önnur og breytileg í byrjun. Gott ef menn byrja ekki skákina á að raða mönnunum upp í reitaraðir 1 og 2 annarsvegar og 7 og 8 hinsvegar, eftir eigin höfði. Hljómar amk spennandi. Fischer fannst og finnst sjálfsagt enn að skákin sé orðið svo rannsökuð að það hefti alla þróun og snilligáfa fái ekki notið sín lengur.
Fischer fannst og finnst sjálfsagt enn að skákin sé orðið svo rannsökuð að það hefti alla þróun og snilligáfa fái ekki notið sín lengur.
Eða þá að hégómi hans hafi verið það mikill að hann hefur ekki þorað að horfast í augu við það að einhver gæti rústað honum á skákborðinu og hann því orðið 'afhuga' skák og búið til sitt eigið afbrigði sem enginn hefur áhuga á að spila, amk. enginn af hans kalíberi.
Það gæti líka útskýrt af hverju hann varði ekki heimsmeistaratitilinn. Hann var bara hræddur um að tapa.
Ólíklegt, Hacuchi. Flestir fagmenn eru sammála um að Fisher beri enn höfuð og herðar yfir aðra skákmenn í heiminum.
Þessi kaldhæðni er öll óverðskulduð. Fisher er einfaldlega snillingur. Sérsinna, eins og snillingar eru, en snillingur samt.
Hann er ekki heill á geði og þess vegna ætti fólk að slaka á svívirðingum sínum í hans garð. Verið örlítið umburðarlynd. Maðurinn á ekki annað skilið.
Ólíklegt, Hacuchi. Flestir fagmenn eru sammála um að Fisher beri enn höfuð og herðar yfir aðra skákmenn í heiminum.
Þessi kaldhæðni er öll óverðskulduð. Fisher er einfaldlega snillingur. Sérsinna, eins og snillingar eru, en snillingur samt.
Hvaða fagmenn eru það? Maðurinn hefur ekki teflt í 12 ár. Hvernig í ósköpunum er hægt að halda því fram að hann beri enn höfuð og herðar yfir aðra skákmenn?
Sammála Van Horn hér að ofan. Það þýðir ekkert að valsa um með skurðgoðskýrkunarglampa í augum og telja að þessi veiki maður sé bestur. Maðurinn er í fullu fjöri, líkamlega séð, amk. hann getur bara hunskast til að keppa við aðra til að skera úr um hvort hann sé bestur eða ekki. Eina leiðin til að vera bestur er að vinna ekki satt?
Það að hann keppir ekki við neinn, í það minnsta ekki við neinn sem gæti talist vera með þeim bestu, hlýtur að læða að manni þeim grun að hann hreinlega þori því ekki. Hann hefur varla þorað að keppa í 30 ár (ég tek ekki gildan brandarann í Júgóslavíu á sínum tíma).
Hann er ekki heill á geði og þess vegna ætti fólk að slaka á svívirðingum sínum í hans garð. Verið örlítið umburðarlynd. Maðurinn á ekki annað skilið.
Það er reyndar rétt. Hann á bágt. Hann á heima á Kleppi.