Og sjá, vér boðum yður nýtt jólalag Ívars Sívertsen! Fylgist með á næstu dögum!
Ívar þér eruð snillingurinn.
Hver veit nema ritstjórnin þurfi að fara að passa sig.
ooo... verður bleikur af hógværð en breytist snarlega í grænt aftur Ég er nú ekki að reyna að gera ritstjórninni grikk heldur bara koma frá mér efni sem hefur legið á mér í nokkra daga!
Jæja Ívar, nú ferð þú í bindindi fram yfir jól. Að sjá framan í þig!
Jæja... þá er komið jólalag!
http://www.baggalutur.is/mp3/Ivar_Klukknahreim.mp3Það er hér!
klappar fyrir Ívari
Það verður gaman að sjá ritstjórnina toppa þetta!
GARGANDI FRÁBÆR SNILLD!
Veltist um af hlátri og á bágt með að hitta á rjetta takka á tælenska lyklaborðinu
Öldungis MAGNAÐ hjá þjer Ívar. Fimm stjörnur!
Hahahaha. Stórglæsilegt rokk og ról.
Endilega birtu textann með þessu.
Birta textann Ívar, svo maður geti sungið með... snilld, algjör snilld
Tek undir það. Lágu tónarnir hurfu aðeins undir borðið. Endilega byrta textann. Það ætti að vera skylda!
Klukknahreim
kattarbreim
fyrir mér er eitt
betur myndi ég sko bara
hlusta ekki á neitt
Farðu heim
jólabreim
láttu mig svo kjurt
gerðu okkur mikinn greiða
og hundskastu í burt!
Slekk á útvarpi
loka sjónvarpi
ræski mig og ríf svo kjaft
og stend svo í karpi
bölva lögunum
og ógeðsbögunum
um jóladóna, fávís dýr
og af vitrum fábjánum.
Klukknahreim
kattarbreim
fyrir mér er eitt
betur myndi ég sko bara
hlusta ekki á neitt
Liðið er langt á ár
sífellt lagafár
nú fer ég að haska mér
að draga að þeim dár!
Þetta birtist einnig sem fjelaxrit
Þvílík snilld, Ívar, þér eruð snilli! Skál!
Bullandi brillíans!